FÍS sýknað af kröfum Andrésar Magnússonar 26. ágúst 2009 16:26 Andrés Magnússon Mynd/ Vilhelm
Félag íslenskra stórkaupmanna var í dag sýknað af launakröfum Andrésar Magnússonar, fyrrum framkvæmdastjóra félagsins. Andrés taldi sig eiga inni laun vegna starfslokasamnings síns við fyrirtækið. Andrés Magnússon starfaði sem framkvæmdastjóri FÍS til loka maí á síðasta ári. Í kjölfarið var gerður starfslokasamningur milli hans og félagsins sem fól í sér að hann myndi vinna að hámarki tvær vikur með nýjum framkvæmdastjóra FÍS og taka að sér tilfallandi ráðgjafarverkefni fyrir félagið. Þann 30. júní á síðasta ári var Andrési tjáð á fundi með stjórnarmanni FÍS að það væri mat hans að forsendur stafslokasamnings væru brostnar, þar sem Andrés hafi með ráðningu sinni til samkeppnisaðilans, Samtaka verslunar og þjónustu, brotið bæði skrifaðar og óskrifaðar reglur um trúnaðarskyldu við FÍS Andrés hélt því hinsvegar fram að upplýsingar hefðu farið milli félaganna í sameiningarviðræðum milli félaganna og því hefði það áhrif á trúnaðarskyldu hans við FÍS. Það var mat dómsins að Félag íslenskra stórkaupmanna, og Samtök verslunar og þjónustu, væru hagsmunasamtök á sama sviði, sem eigi í samkeppni sín á milli um aðild verslunar- og þjónustufyrirtækja að samtökunum. Þau hafa tekjur af félagsgjöldum og fjöldi félagsmanna skiptir því máli fjárhagslega. „Verður því að telja að það samrýmdist ekki þeim trúnaðarskyldum sem stefnandi var bundinn gagnvart stefnda að taka við starfi framkvæmdarstjóra hjá félagi sem var í samkeppni við stefnda á sama tíma og hann þáði laun hjá stefnda samkvæmt starfslokasamningi." Þá var mat dómsins að það hefði ekki áhrif á trúnaðarskyldu Andrésar þótt upplýsingar hafi farið á milli félaganna er viðræður þeirra um sameiningu stóðu yfir. FÍS var því sýknað af kröfum Andrésar.
Mest lesið Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Erlent Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Innlent Bíll í ljósum logum á Skaganum Innlent Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Erlent Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Erlent Fleiri fréttir Metfjöldi á biðlista og mögulega þarf að vísa frá Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Bíll í ljósum logum á Skaganum Vatnslögn í sundur í Smáralind Aldrei fleiri börn á biðlista og útrás í Kína Á hundrað og þrjátíu á sextíu götu Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Leggja til 80 milljónum árlega í nýja líkbrennslu Hinn stungni á batavegi en stungumennirnir ófundnir Mikill áhugi á ræktun rabarbara með tilkomu Rabarbarafélags Íslands Málþófið endurspegli ráðaleysi minnihlutans gagnvart samstíga stjórn Vill meira frá ríkinu, annars gætu nemar þurft að borga meira Stutt í land í þinginu og spenna fyrir landsleik Yfirgangur hins opinbera, þrátefli á þinginu og fráleit þjóðaratkvæðagreiðsla Ætla að knýja Flatey með sólarorku Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Sjá meira