Miklu betur búið en í upphafi 26. ágúst 2009 06:00 Alþingi Icesave-málið verður rætt á þingi á fimmtudag. fréttablaðið/anton
Fjármálaráðuneytinu verður falið að kynna Bretum og Hollendingum fyrirvara Alþingis við ríkisábyrgð Icesave-lánanna og fá frá þeim formlega staðfestingu á að þeir fallist á þá. Þetta er önnur tveggja breytinga sem fjárlaganefnd gerir á Icesave-frumvarpinu milli annarrar og þriðju umræðu þingsins. Hin breytingin snýr að málsmeðferð eftir árið 2024 ef eftirstöðvar verða af láninu. Fjárlaganefnd segir að komi sú staða upp skuli einfaldlega teknar upp viðræður milli aðila um framhaldið. Að breytingunum standa allir flokka utan Framsóknar. Með þessum breytingum er umfjöllun fjárlaganefndar um málið lokið. Það verður tekið til þriðju umræðu í þinginu á fimmtudag. Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, segir málið allt hafa styrkst síðan nefndin fékk það til umfjöllunar 6. júlí. „Við höfum unnið að því að styrkja það með íslenska hagsmuni í huga. Við það eru settir miklir lagalegir og efnahagslegir fyrirvarar og ég tel klárlega að málið sé miklu betur búið en í upphafi.“ Ekki liggur fyrir hve miklum tíma fjárlaganefnd varði í umfjöllun um Icesave en Guðbjartur segir nefndina hafa fundað svo að segja daglega, ýmist formlega eða óformlega, allt frá því að hún fékk málið í hendur fyrir rúmum sjö vikum. „Þetta var erfiður tími en spennandi og ögrandi og af starfinu hlaust mikill lærdómur,“ segir Guðbjartur. Samstarfið í fjárlaganefnd hafi verið gott og menn lagt sig fram um að betrumbæta málið. Fyrir fjárlaganefnd liggur nú að vinna að fjárlagafrumvarpi ársins 2010.- bþs
Mest lesið Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Innlent Ísraelsmenn undirbúi árás á skútuna með Gretu Thunberg um borð Erlent Grafalvarlegt ástand í LA: „Þetta eru einhverjar fasískar leikaðferðir“ Erlent Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Erlent Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Innlent Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata Erlent Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Innlent Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Innlent „Ertu kannski Íslendingur?“ Lífið Rannsökuðu eigin samsæriskenningar um fljúgandi furðuhluti Erlent Fleiri fréttir Vond stjórnsýsla að teikna bara einhverja reiti á kort Fresta uppbyggingu verkmenntaskóla: „Þessi óvissa er fyrir neðan allar hellur“ Menningarveisla í allt sumar á Sólheimum Björgunarsveit selur derhúfur í stíl Bandaríkjaforseta Alvarlegt ástand í Los Angeles og opnun nýs Konukots Eftirlýstur maður handtekinn grunaður um vændiskaup Ríkisstjóri Utah heimsækir Eyjar: Mormónarnir vissu allt um sprönguna Heilbrigðisstofnun Suðurnesja skilaði 800 milljónum til ríkissjóðs Alþjóðlegir sérfræðingar ræða baráttuna gegn myglu í Hörpu Hermenn í Los Angeles, mylguráðstefna og síðasti leikur Arons Pálmarssonar Hætta með ökuskírteini í símaveski vegna Evrópureglna Evrópusambandið, rétttrúnaður og endurskoðun veiðiráðgjafarinnar Þrír reyndu að komast undan lögreglu Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Fleiri börn deyja á Gasa og óttast um fornminjar í Laugarnesi Ók á gangandi vegfarenda og keyrði burt Umræðu um bókun 35 aftur frestað Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Norðurlandamót í Bridge á Laugarvatni alla helgina Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará Enn eitt banaslysið í Brúará, landvinningar lúsmýs og þungarokkshátíð Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið „Ef þetta gengur vel mun hún eignast allan bátinn“ Konan sem féll í Brúará er látin Fimm frumvörp fjögurra ráðuneyta samþykkt Klara Baldursdóttir er látin Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna göngumanns Sjá meira