Innlent

Fjöldi kennsludaga í framhaldsskólum óbreyttur

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Menntaskólinn í Reykjavík.
Menntaskólinn í Reykjavík. Mynd/GVA

Samanlagður fjöldi kennsludaga og prófadaga nemenda í framhaldsskólum skólaárið 2008-2009 var á bilinu 164 til 185 eftir skólum, en að meðaltali 174,7. Það er svo til óbreyttur fjöldi daga frá fyrra skólaári, að því er fram kemur á heimasíðu Hagstofunnar.

Af þeim 34 skólum sem sáu Hagstofunni fyrir gögnum voru sex starfandi eftir bekkjarkerfi, en hinir eftir áfangakerfi.

Kennsludagar skiptast í reglulega kennsludaga og aðra kennsludaga. Reglulegir kennsludagar voru frá 142 til 179 eftir skólum og stafar munurinn af mismunandi skipulagi skólastarfsins. Meðalfjöldi reglulegra kennsludaga var 147,4 sem er fækkun um 0,2 daga frá fyrra skólaári. Reglulegir kennsludagar voru að meðaltali 2,5 fleiri á vorönn en á haustönn. Aðrir kennsludagar voru 2,2 að meðaltali.

Dagar sem einungis var varið til prófa og námsmats voru almennt frá 8 til 30 að tölu. Að meðaltali var 25 dögum varið til prófa og námsmats sem er óbreyttur fjöldi frá síðastliðnu skólaári.

Meðalfjöldi vinnudaga kennara var 181,3 og er það fækkun um tæplega einn dag frá síðastliðnu skólaári. Þar af voru vinnudagar kennara að meðaltali 178,3 á árlegum starfstíma skóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×