Innlent

Útskrifast af íslenskunámskeiði

Útskrifaðir voru 105 nemendur af íslenskunámskeiði hjá Háskólasetri Vestfjarða á mánudag. Allir nemendurnir náðu lágmarkseinkunn.

Námskeiðið hefur farið fram undanfarnar þrjár vikur á Ísafirði og á Núpi í Dýrafirði. Það er hugsað sem undirbúningur fyrir dvöl hér á landi og eru flestir nemendanna á leið í skiptinám á Íslandi í vetur.

Þátttakendurnir hafa einnig ferðast um Vestfirði þessar vikur í tengslum við námskeiðið. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×