Sagði starfsmann Barnaverndar mannætu 23. júní 2009 12:01 Maðurinn sakaði barnaverndarfulltrúann um mannát.
Karlmaður á fertugsaldri hlaut í dag þriggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir hótanir en var sýknaður af ákæru um ærumeiðingar vegna fyrningar. Maðurinn var sakfelldur fyrir hótanir gagnvart starfsmanni Barnaverndarnefndar með því að hafa sent sms skilaboð í síma eiginmanns hennar og tvíburasona hennar. Starfsmaðurinn sem hótanirnar beindust að hafði annast mál barna hins ákærða, drengs og stúlku, en forræði yfir þeim var í höndum móður þeirra. Ákærði mátti einungis sjá drenginn undir eftirliti. Fjölskylda ákærða fékk hinsvegar að sjá drenginn án eftirlits og fór það ekki vel í manninn sem í kringum áramótin 2006-2007 fór að senda skilaboðin í síma eiginmanns starfsmannsins og sona hennar. Skilaboðin fólu oftast í sér spurningar. Í einu þeirra var þeirri spurningu beint að eiginmanni hennar hvort hann væri farinn að sjá að hún héldi fram hjá honum oft í viku og í öðru var spurt að því hvað kona hans væri að gera á einkamál.is. Maður konunnar sagði fyrir dómi að flest skilaboðin hefðu borist kringum áramót 2006-2007. Þau hafi orðið svæsnari með tímanum en í skilaboðum til tvíburanna hefði kona hans verið vænd um mannát og fjölskyldunni verið hótað því að rakettu yrði skotið inn um gluggana. Annar tvíburasonur hans hefði fengið skilaboð þar sem stóð: ,,Hvað gerist ef annar tvíburinn fær rakettu í andlitið?" Maðurinn var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi en en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum þremur árum haldi ákærði almennt skilorð.
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Sjá meira