Enn ein flökkusaga af dauða Kim Jong-il Atli Steinn Guðmundsson skrifar 1. desember 2009 07:49 Kim Jong-il, lengst til vinstri.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu lýstu því yfir opinberlega í morgun að ekkert væri hæft í því að Kim Jong-il Norður-Kóreuleiðtogi hefði verið myrtur eftir að sögusagnir um það komust á kreik. Það var Chun Hae-sung, talsmaður sameiningarráðuneytis Suður-Kóreu, sem bar orðróminn til baka en síðustu daga gekk sú saga manna á milli að Kim Jong-il hefði verið myrtur í árás óþekktra tilræðismanna. Fregnirnar höfðu strax áhrif á hlutabréfamarkaðinn þar austur frá og lækkuðu einhverjar vísitölur tengdar norðurkóreskum fyrirtækjum - þó ekki mikið. Fregnir af dauða kommúnistaleiðtogans eru nær daglegt brauð og hefur japanska leyniþjónustan til dæmis haldið því fram að Kim Jong-il hafi safnast á vit feðra sinna fyrir löngu en staðgenglar sem líkist honum gegni hlutverki hans opinberlega til að tryggja tök kommúnistaflokksins á þjóðinni. Almennt er þó talið líklegra að karlinn sé enn á róli en vitað er að hann fékk heilablóðfall í ágúst í fyrra auk þess sem suðurkóreskir fjölmiðlar segjast hafa fengið það staðfest að hann berjist við krabbamein í briskirtli, sykursýki og hjartveiki en leiðtoginn á nú rúmt ár í sjötugt. Á meðan þessar sögur ganga keppast fjölmiðlar í Norður-Kóreu við að segja frá því að Jong-il sé fjallhress á þvælingi um allt land að heimsækja verksmiðjur og bóndabæi.
Mest lesið Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Fleiri fréttir Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Mannfallið að nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Sjá meira