Vinstri grænir skila einnig styrk frá Íslandspósti 24. mars 2009 15:49
Vinstrihreyfingin grænt framboð skilaði í dag 150 þúsund króna styrk sem flokkurinn fékk frá Íslandspósti árið 2007, segir Drífa Snædal framkvæmdastýra flokksins. Samfylkingin tilkynnti í morgun að flokkurinn ætlaði endurgreiða Íslandspósti styrk frá fyrirtækinu. Samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðendur mega stjórnmálarflokkar ekki þiggja framlög frá fyrirtækjum í opinberri eigu. Ríkisendurskoðun birti á föstudaginn í fyrsta skipti útdrætti úr ársreikningum stjórnmálaflokkanna fyrir árið 2007. Þar kom fram að Íslandspóstur, sem er í opinberri eigu, styrkti Samfylkingu, Sjálfstæðisflokk, Vinstri græna og Framsóknarflokk í kosningabaráttunni vorið 2007. Í úttekt Ríkisendurskoðunar kom einnig í ljós að Neyðarlínan styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 300 þúsund krónur. Neyðarlínan var ekki orðið opinbert hlutafélag þegar flokkurinn falaðist eftir framlaginu en félagið var hinsvegar í meirihlutaeigu ríkisins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur endurgreitt fjárframlagið. Þá kom jafnframt í ljós að utanríkisráðuneytið styrkti Samband ungra framsóknarmanna um 90 þúsund krónur 2007 en þá var Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra.
Tengdar fréttir Endurgreiði styrkinn frá Neyðarlínunni Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að afþakka 300 þúsund króna framlag sem Neyðarlínan veitti flokknum árið 2007 og endurgreiða það. 23. mars 2009 16:15 Neyðarlínan styrkti Sjálfstæðisflokkinn Opinbera hlutafélagið Neyðarlínan ohf greiddi Sjálfstæðisflokknum þrjúhundruð þúsund krónur í framlag til kosningabaráttu flokksins fyrir síðustu kosningar. Hámarks framlag til stjórnmálaafls eru þrjú hundruð þúsund krónur. Athygli vekur að ríkissjóður á 73,6 prósent í Neyðarlínunni, restin skiptist á milli Reykjavíkurborgar, Landsvirkjunnar og Orkuveitu Reykjavíkur. 21. mars 2009 11:25 Sjálfstæðisflokkur braut lög Sjálfstæðisflokkur braut lög þegar hann veitti þrjú hundruð þúsund króna styrk frá Neyðarlínunni viðtöku. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir að honum hafi ekki verið kunnugt um að styrkveitingin væri lögbrot. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. 22. mars 2009 00:00 Utanríkisráðherrann Valgerður styrkti eigin flokk Utanríkisráðuneytið styrkti Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur árið 2006 samkvæmt gögnum Ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka. Þá var Framsóknarkonan Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra en hún gengdi því embætti frá 2006-2007. 21. mars 2009 15:01 Neyðarlínan var í meirihlutaeigu ríkisins Neyðarlínan var ekki orðinn opinbert hlutafélag þegar Sjáfstæðisflokkurinn falaðist eftir framlagi til flokksins en félagið var hinsvegar í meirihlutaeigu ríkisins. 21. mars 2009 12:18 Harmar að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið við framlögum frá Neyðarlínunni Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segist harma þau mistök sem urðu þegar að flokkurinn tók við fjárframlögum frá Neyðarlínunni. Í yfirlýsingu sem Andri hefur sent frá sér segir hann að framlagið hafi þegar verið endurgreitt og muni öll framlög sem stangist á við lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra verða endurgreidd. 23. mars 2009 17:28 Samfylkingin endurgreiðir styrk Samfylkingin ætlar að endurgreiða síðar í dag 150 þúsund króna styrk sem flokkurinn fékk frá Íslandspósti árið 2007, segir Sigrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri flokksins í samtali við fréttastofu. Hún segir að Samfylkingin harmi mistökin og að verklagsreglur við öflun styrkja til flokksins verði hertar. 24. mars 2009 10:50 Ungir Framsóknarmenn fengu styrk Valgerðar „Þessu styrkur var fyrir norræna ráðstefnu ungs fólks sem Samband ungra Framsóknarmanna áttu aðild að, en styrkurinn var í gegnum þá," segir Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum utanríkisráðherra, en í skýrslu ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka kemur fram að utanríkisráðuneytið hafi styrkt Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur. Þá gegndi Valgerður stöðu utanríkisráðherra. 21. mars 2009 16:19 Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Nánast búin með stafrófið Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Sjá meira
Endurgreiði styrkinn frá Neyðarlínunni Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að afþakka 300 þúsund króna framlag sem Neyðarlínan veitti flokknum árið 2007 og endurgreiða það. 23. mars 2009 16:15
Neyðarlínan styrkti Sjálfstæðisflokkinn Opinbera hlutafélagið Neyðarlínan ohf greiddi Sjálfstæðisflokknum þrjúhundruð þúsund krónur í framlag til kosningabaráttu flokksins fyrir síðustu kosningar. Hámarks framlag til stjórnmálaafls eru þrjú hundruð þúsund krónur. Athygli vekur að ríkissjóður á 73,6 prósent í Neyðarlínunni, restin skiptist á milli Reykjavíkurborgar, Landsvirkjunnar og Orkuveitu Reykjavíkur. 21. mars 2009 11:25
Sjálfstæðisflokkur braut lög Sjálfstæðisflokkur braut lög þegar hann veitti þrjú hundruð þúsund króna styrk frá Neyðarlínunni viðtöku. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir að honum hafi ekki verið kunnugt um að styrkveitingin væri lögbrot. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. 22. mars 2009 00:00
Utanríkisráðherrann Valgerður styrkti eigin flokk Utanríkisráðuneytið styrkti Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur árið 2006 samkvæmt gögnum Ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka. Þá var Framsóknarkonan Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra en hún gengdi því embætti frá 2006-2007. 21. mars 2009 15:01
Neyðarlínan var í meirihlutaeigu ríkisins Neyðarlínan var ekki orðinn opinbert hlutafélag þegar Sjáfstæðisflokkurinn falaðist eftir framlagi til flokksins en félagið var hinsvegar í meirihlutaeigu ríkisins. 21. mars 2009 12:18
Harmar að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið við framlögum frá Neyðarlínunni Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segist harma þau mistök sem urðu þegar að flokkurinn tók við fjárframlögum frá Neyðarlínunni. Í yfirlýsingu sem Andri hefur sent frá sér segir hann að framlagið hafi þegar verið endurgreitt og muni öll framlög sem stangist á við lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra verða endurgreidd. 23. mars 2009 17:28
Samfylkingin endurgreiðir styrk Samfylkingin ætlar að endurgreiða síðar í dag 150 þúsund króna styrk sem flokkurinn fékk frá Íslandspósti árið 2007, segir Sigrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri flokksins í samtali við fréttastofu. Hún segir að Samfylkingin harmi mistökin og að verklagsreglur við öflun styrkja til flokksins verði hertar. 24. mars 2009 10:50
Ungir Framsóknarmenn fengu styrk Valgerðar „Þessu styrkur var fyrir norræna ráðstefnu ungs fólks sem Samband ungra Framsóknarmanna áttu aðild að, en styrkurinn var í gegnum þá," segir Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum utanríkisráðherra, en í skýrslu ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka kemur fram að utanríkisráðuneytið hafi styrkt Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur. Þá gegndi Valgerður stöðu utanríkisráðherra. 21. mars 2009 16:19