Þrjár formlegar kvartanir til Jafnréttisstofu 17. mars 2009 16:13 Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.
Eins og greint var frá fyrr í dag hefur Jafnréttisstofu borist formleg kvörtun vegna kosningar í bankaráð Seðlabankans. Í tilkynningu frá Jafnréttisstofu kemur ennfremur fram að formlegar kvartanir hafi einnig borist vegna skipana í í bankaráð Nýja Kaupþings og í stjórnarskrárnefnd. Jafnréttisráð segist líta á öll möguleg brot á jafnréttislögum alvarlegum augum og mun því taka kvartanirnar til afgreiðslu. Á heimasíðu Jafnréttisráðs er meðal annars bent á að í nýju Seðlabankaráði sé óbreytt kynjahlutfall frá fyrra bankaráði sem var kjörið af Alþingi árið 2007, en af sjö aðalmönnum eru tvær konur. Þá er bent á að í kjölfar þess að Hulda Dóra Styrmisdóttir var á hluthafafundi þann 26. febrúar sl. kosin formaður stjórnar Nýja Kaupþings hf. í stað Gunnars Arnar Kristjánssonar er stjórn bankans nú skipuð fimm konum. „Sérnefnd um stjórnarskrármál var síðan kjörin af Alþingi sl. fimmtudag, 12. mars, en hana skipa átta karlar og ein kona," segir einnig í fréttinni. „Í kvörtununum er vísað til ákvæða laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008, en þar segir að við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli þess gætt að hlutfall kynjanna sé sem jafnast og ekki minna en 40%, þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða," segir ennfremur og þess getið að Jafnréttisstofa hafi gert talsvert af því að minna á þetta ákvæði jafnréttislaganna. „Má þar nefna að send voru bréf til bankastjórna allra ríkisbankanna þriggja í október, þar sem minnt var á nefndarákvæðið og fleiri ákvæði laganna. Einnig var sent bréf til allra ráðherra ríkisstjórnarinnar í febrúar sl., þar sem minnt var á ákvæði laganna um skipan í nefndir, stjórnir og ráð. Loks hefur Jafnréttisstofa sent erindi til Fjármálaeftirlitsins vegna skilanefnda bankanna."
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira