Innlent

Þrjár formlegar kvartanir til Jafnréttisstofu

Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.
Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu.

Eins og greint var frá fyrr í dag hefur Jafnréttisstofu borist formleg kvörtun vegna kosningar í bankaráð Seðlabankans. Í tilkynningu frá Jafnréttisstofu kemur ennfremur fram að formlegar kvartanir hafi einnig borist vegna skipana í í bankaráð Nýja Kaupþings og í stjórnarskrárnefnd. Jafnréttisráð segist líta á öll möguleg brot á jafnréttislögum alvarlegum augum og mun því taka kvartanirnar til afgreiðslu.

Á heimasíðu Jafnréttisráðs er meðal annars bent á að í nýju Seðlabankaráði sé óbreytt kynjahlutfall frá fyrra bankaráði sem var kjörið af Alþingi árið 2007, en af sjö aðalmönnum eru tvær konur. Þá er bent á að í kjölfar þess að Hulda Dóra Styrmisdóttir var á hluthafafundi þann 26. febrúar sl. kosin formaður stjórnar Nýja Kaupþings hf. í stað Gunnars Arnar Kristjánssonar er stjórn bankans nú skipuð fimm konum. „Sérnefnd um stjórnarskrármál var síðan kjörin af Alþingi sl. fimmtudag, 12. mars, en hana skipa átta karlar og ein kona," segir einnig í fréttinni.

„Í kvörtununum er vísað til ákvæða laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008, en þar segir að við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli þess gætt að hlutfall kynjanna sé sem jafnast og ekki minna en 40%, þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða," segir ennfremur og þess getið að Jafnréttisstofa hafi gert talsvert af því að minna á þetta ákvæði jafnréttislaganna.

„Má þar nefna að send voru bréf til bankastjórna allra ríkisbankanna þriggja í október, þar sem minnt var á nefndarákvæðið og fleiri ákvæði laganna. Einnig var sent bréf til allra ráðherra ríkisstjórnarinnar í febrúar sl., þar sem minnt var á ákvæði laganna um skipan í nefndir, stjórnir og ráð. Loks hefur Jafnréttisstofa sent erindi til Fjármálaeftirlitsins vegna skilanefnda bankanna."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×