Lögreglan varar við flugmiðasvikurum 27. ágúst 2009 09:38
Lögreglan á Suðurnesjum hefur síðustu daga haft afskipti af 12 aðilum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna þess að greitt hafði verið fyrir farmiða þeirra með stolnum greiðslukortum. Um svikamyllu virðist vera að ræða en lögregla segir að þeir sem keyptu miðana virðast ekkert tengjast innbyrðis og er frásögn þeirra af því hvernig þeir keyptu miðana öll á sömu lund. „Fólkið segist hafa keypt farmiða sína á internetinu af óþekktum millilið sem bauð flugferðir á mjög góðu verði („last-minute" miða). Fólkið fékk síðan sent bókunarnúmer með e-mail mjög skömmu fyrir brottför og var sagt að fara í flugstöðina, sýna bókunarnúmerið og framvísa vegabréfi," segir í tilkynningu frá lögreglunni. Að sögn lögreglu vissu menn í flugstöðinni að miðarnir hefðu verið keyptir með stolnum greiðslukortum og því var fólkinu meinað að halda áfram för sinni. „Allir sem stöðvaðir hafa verið eru af erlendu bergi brotnir og flest bendir til að þeir aðilar sem sviku fólkið séu erlendis," segir einnig. Þá segir í tilkynningu lögreglu að fleiri en þessir 12 aðilar hafa keypt farmiða með sama hætti að undanförnu en svikin ekki komist upp í tæka tíð. „Af þessu tilefni vill Lögreglan á Suðurnesjum vara fólk við því að kaupa flugfarseðla af óþekktum aðilum á internetinu og beina viðskiptum sínum beint til flugfélaganna eða annarra þekktra viðskiptaaðila," segir að lokum.
Mest lesið „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Erlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Sjá meira