Sameining Magma og GGE til skoðunar frá upphafi 27. ágúst 2009 04:45 Mótmæli Opinn fundur sem haldinn var í Grindavík í fyrrakvöld skorar á ríkisstjórnina að koma í veg fyrir einkavæðingu HS Orku, þriðja stærsta orkufyrirtækis landsins.Fréttablaðið/Valli
Möguleikinn á sameiningu Geysis Green Energy og kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy hefur verið til skoðunar frá því fyrirtækin ræddu fyrst samstarf innan HS Orku. Forsvarsmenn fyrirtækjanna segja sameiningu þó ekki í kortunum alveg á næstunni. Geysir Green hefur eignast meirihluta í HS Orku, og Magma Energy á um ellefu prósenta hlut. Magma stefnir að auki að því að eignast 34 prósenta hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku, og hefur lagt fram tilboð í hlutinn. Ross J. Beaty, forstjóri Magma Energy, útilokar ekki að Magma hefði hug á að eiga minnihluta í HS Orku, fari svo að opinberir aðilar eignist meirihluta í félaginu. Það sé þó síður en svo ákjósanleg niðurstaða. Hann segir augljóst að eignist Magma ekki ráðandi hlut í HS Orku muni skorta upp á áhuga og kraft fyrirtækisins, sem sé slæmt fyrir Magma og HS Orku. „Við verðum að vinna með Geysi Green og skoða þá möguleika sem eru í stöðunni, Geysir Green er í fremur veikri stöðu svo við vonumst til þess að við getum sameinað krafta okkar í framtíðinni,“ segir Beaty. Spurður hvort til standi að sameina Geysi Green og Magma segir hann: „Samruni hefur verið ræddur, þó það séu vissulega ljón í veginum. Staðan er flókin og það tekur tíma að vinna sig í gegnum hana.“ Andstaða við kaup Magma á stórum hlut í HS Orku hefur aukist undanfarið. Opinn fundur sem haldinn var í Grindavík í fyrrakvöld skoraði á ríkisstjórnina að koma í veg fyrir kaupin. Beaty segir að almenningur á Íslandi verði að skilja hvers konar fyrirtæki Magma sé og hver áformin séu. „Við erum ekki ógnvekjandi fyrirtæki, við viljum vinna með HS Orku við að byggja upp sterkara fyrirtæki, til góðs fyrir Íslendinga, okkur sjálfa, og raunar heiminn allan.“ Beaty þvertekur fyrir að Magma sé að skipa sér í hóp með fyrirtækjum sem sjái tækifæri fyrir skjótfenginn gróða með því að kaupa rústir íslenskra fyrirtækja eftir hrunið. „Við erum ekki hrægammar, við viljum vera til fyrirmyndar hér á landi eins og önnur fyrirtæki mín annars staðar í heiminum.“ Hann hafnar því einnig að fyrirhugaðar fjárfestingar Magma, og nýting á jarðvarmaauðlindum, muni skilja lítið eftir hér á landi. „Tekjur hins opinbera munu koma frá gjaldi fyrir auðlindir, sköttum, störfum sem skapast og fjárfestingu í innviðum fyrirtækisins.“ Beaty segist sannfærður um að það væri gott fyrir alla aðila fái Magma að kaupa hlut Orkuveitunnar í HS Orku. Heimurinn breytist hins vegar hratt, og gangi það ekki eftir séu ýmis tækifæri annars staðar en á Íslandi. „Við viljum augljóslega ljúka samningaviðræðum við Orkuveituna sem fyrst, sé á annað borð hægt að ljúka þeim. Við höfum enga möguleika til að þrýsta á eitt né neitt öðruvísi en með því að benda á kostina við að salan á hlut Orkuveitunnar í HS Orku nái fram að ganga.“ brjann@frettabladid.is
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fleiri fréttir Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Sjá meira