Innlent

Yrði mikilvæg samgönguúrbót

raufarhöfn Vegurinn, sem verður 56 kílómetra langur, mun vera með tengingu til Raufarhafnar.fréttablaðið/gva
raufarhöfn Vegurinn, sem verður 56 kílómetra langur, mun vera með tengingu til Raufarhafnar.fréttablaðið/gva

Sveitarstjórnir á Norðausturlandi þrýsta nú á samgönguyfirvöld að klára að malbika vegarkaflann um Hófaskarðsleið. Verklok áttu að vera í september en mikið hefur gengið á og mun framkvæmdin líklega frestast um að minnsta kosti eitt ár.

„Þetta eru búin að vera mikil vonbrigði af því að vegakerfið hér er vægt til orða tekið mjög slæmt,“ segir Siggeir Stefánsson, oddviti Langanesbyggðar, þar sem Þórshöfn er meðal byggða.

Segir hann þennan vegakafla vera mikilvæga samgönguúrbót þar sem þetta sé síðasta vegakaflinn frá Norðausturlandi til Reykjavíkur sem er ómalbikaður.

Um er að ræða 56 km veg á milli Öxarfjarðar og Þistilfjarðar, með tengingu til Raufarhafnar. Styr hefur verið um tveggja kílómetra kafla af leiðinni. Vegagerðin á enn eftir að malbika um 20 kílómetra. Upphaflega ætlaði Vegagerðin að leggja veginn í gegnum bæ sem þeir ætluðu að taka eignarnámi.

Bændurnir mótmæltu og unnu málið í Hæstarétti. Þá ætlaði Vegagerðin að fara í gegnum jörð sem var að mestu í eigu ríkisins. Það vildu eigendur ekki. Lagði Vegagerðin þá til að fara málamiðlunarleið. Skipulagsstofnun taldi að það þyrfti að fara í umhverfismat. Vegagerðin hefur kært það þar sem það yrði alltof tímafrekt. Úrskurðar er að vænta í byrjun október.- vsp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×