Flaug frá Noregi til að hlaupa maraþon en mætti degi of seint Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 27. ágúst 2009 13:44 Stuart Hill er allt annað en sáttur við skipuleggjendur Reykjavíkurmaraþonsins.
Maraþonhlauparinn Stuart Hill flaug alla leið frá Noregi til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu en mætti degi of seint. Hann er ósáttur við skipuleggjendur hlaupsins sem hann segir að hafi gefið sér rangar upplýsingar dagssetningu þess í gegnum síma. Stuart hefur tekið þátt í hlaupum um víða veröld og átti Reykjavíkurmaraþonið að vera hans stærsta hlaup þetta árið. Hann missti hinsvegar af hlaupinu, að eigin sögn vegna rangra upplýsinga sem hann fékk í samtali við skipuleggjendur hlaupsins. „Þegar ég skráði mig var mér ekki ljós hvaða dag hlaupið færi fram. Á enskri útgáfu vefsíðunnar var ekki tekið skýrt fram hvaða dag það væri. Til að fá nánari upplýsingar hringdi ég í skipuleggjendur og var þá tilkynnt að hlaupið færi fram sunnudaginn 23. ágúst, 2009. Mér var einnig sagt að ég gæti sótt gögn vegna hlaupsins á laugardagseftirmiðdag," segir Stuart í yfirlýsingu sem hann sendir fjölmiðlum. Stuart segir það í hæsta máta óeðlilegt að í staðfestingarpósti sem hann fékk vegna hlaupsins hafi tími og dagsetning hlaupsins hvergi komið fram. Hann segist hafa tekið þátt í fjölda víða um heim og þekki ferlið varðandi þáttöku í slíku hlaupi mjög vell. „Ég kom til Reykjavíkur síðdegis á laugardag. Mér til mikillar skelfingar fékk ég þá að heyra að hlaupið hefði farið fram um morguninn og væri því búið," segir Stuart sem var harmi sleginn við fregnirnar. „Aðeins sá sem stundar víðavangshlaup getur skilið vonbrigði mín að fullu. Ég hafði æft fyrir þetta hlaup sleitulaust og fórnað miklu vegna þessa. Þetta átti að vera maraþonviðburður ársins hjá mér. Undirbúningurinn kostaði bæði þrek, tíma og peninga." Stuart segir það vera á ábyrgð þess sem heldur hlaupið að sjá til þess að keppendur fái allar upplýsingar um hlaupið. Hann segist hafa sett sig í samband við skipuleggjendur hlaupsins með það að leiðarljósi að fá einhverskonar bætur fyrir sinn skaða en mætt litlum skilningi af þeirra af hálfu. „Mér finnst þetta út í hött. Ég er hef ekki gerst sekur um mistök í þessu máli. Síðan hvenær er það ekki nóg að hringja í skipuleggjendur hlaupsins til að fá réttar upplýsingar?" Stuart segist enn vera að jafna sig á þeim vonbrigðum sem hann varð fyrir um síðustu helgi. Hann segist vilja koma í veg fyrir að aðrir erlendir íþróttamenn lendi í samskonar óhappi vegna lélegra upplýsinga. „Ég vil koma í veg fyrir aðrir lendi í því sama og ég."
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira