Innlent

Innbrotalaust á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafði ekki borist nein tilkynning um innbrot klukkan hálfsjö í morgun, sem ótvírætt telst til tíðinda eftir mikla innbrotahrynu síðustu vikurnar. Að meðaltali er tilkynnt um þó nokkur innbrot á hverri nóttu, en undanfarið hefur lögreglan upprætt að minnsta kosti tvö þjófagengi og eru nokkrir í gæsluvarðhaldi í framhaldi af því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×