Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn fatlaðri stjúpdóttur 25. mars 2009 19:56
Héraðsdómur Reykjaness sýknaði á mánudaginn karlmann af ákæru fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn fatlaðri stjúpdóttur sinni. Karlmaðurinn var sakaður um að hafa sett fingur í leggöng og/eða nuddað kynfæri hennar innanklæða. Hann hafi notfært sér að stúlkan ákærði sér það að hún gat ekki spornað við verknaðinum eða skilið þýðingu hans vegna andlegrar fötlunar sinnar. Það var hinn 16. október 2007 sem lögreglu barst erindi frá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra þess efnis að upp væri kominn grunur um að tvítugur skjólstæðingur þeirra hefði orðið fyrir kynferðisbroti af hálfu stjúpföður síns og að óskað væri eftir rannsókn á þessum grun. Stúlkan hafði sagt tveimur starfsmönnum skammtímavistunarinnar, sem hún var vistuð á, frá því að stjúpfaðir hennar hafi snert kynfæri hennar og komið upp í rúm til hennar. Móðir hennar var upplýst um það sem komið hafði fram í samtölum stúlkunnar við starfsmennina. Í því samtali hafði móðirin upplýst, ráðgjafa svæðisskrifstofunnar, um að sambýlismaður hennar hefði verið dæmdur fyrir kynferðisbrot fyrir 20 árum. Í dómi Héraðsdóms Reykjaness kemur fram að ákærði hafi neitað sök. Ágætt samræmi sé á framburði brotaþola hjá lögreglu og fyrir dómi og í málinu liggi ekkert fyrir sem fari í bága við framburð hennar annað en neitun ákærða. Við mat á trúverðugleika frásagnar hennar beri þó að hafa í huga að samkvæmt framburði vitna, sem komu fyrir dóminn, eigi hún það til að spinna ævintýra- og ýkjusögur og gerir ekki alltaf skýran greinarmun á ævintýraheimi sínum og raunveruleikanum. Engin sérfræðigögn hafi verið lögð fram í málinu sem benda til þess brotaþoli hafi orðið fyrir kynferðisbroti og ekkert þeirra vitna, sem kom fyrir dóminn, hafi getað borið um að breytingar hefðu orðið á hegðun eða andlegri líðan brotaþola eftir ætlað atvik. Þá bendir dómurinn á að samkvæmt meðferð sakamála hvíli sönnunarbyrðin um sekt sakbornings og atvik, sem telja megi honum í óhag, á ákæruvaldinu. Sakaratriði málsins séu í raun ekki við önnur gögn að styðjast en framburð brotaþola. Með hliðsjón af því og öðru framangreindu verði ekki talið gegn neitun ákærða að ákæruvaldinu hafi tekist að sanna svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi sýnt af sér þá háttsemi sem honum er gefin að sök í málinu. Verði ákærði því sýknaður af öllum kröfum ákæruvalds.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira