Vantrauststillaga samþykkt naumlega 25. mars 2009 12:23 Mirek Topolanek, forsætisráðherra Tékklands.
Þing Tékklands samþykkti í gærkvöldi vantrauststillögu á minnihlutastjórn mið- og hægriflokka í landinu. Evrópusambandið segir stjórnarkreppu í Tékklandi ekki áhyggjuefni þó Tékkar séu nú í forystu fyrir sambandið. Það voru sósíalistar og kommúnístar í stjórnarandstöðu á tékkneska þinginu sem lögðu fram vantrauststillöguna. Hún var samþykkt naumlega með hundrað og einu atkvæði af tvö hundruð. Fjórir stjórnarþingmenn greiddu atkvæði með tillögunni. Hún var lögð fram eftir að ásakanir komu fram um að ráðgjafar Mireks Topolaneks, forsætisráðherra, hefðu reynt að koma í veg fyrir að sjónvarpsþáttur yrði sýndur þar sem sett var fram hörð gagnrýni á stjórnarandstöðuþingmenn sem höfðu ákveðið að styðja minnihlutastjórnina. Stjórn Topolaneks situr þar til ný verður myndu. Vaclav Klaus, forseti Tékklands, mun veita stjórnarmyndunarumboð og getur gert það þrívegis áður en boða þarf til kosninga. Niðurstaðan frá í gær getur haft töluverð áhrif ekki síst vegna þess að Tékkar eru í forystu fyrir Evrópusambandið þar til í lok júní þegar Svíar taka við. Auk þess hafa Tékkar enn ekki staðfest Lissabon sáttmálann um stjórnskipan Evrópusambandsins og óvíst hvaða stefnu það mál tekur með nýrri stjórn. Einnig eru Tékkar nú í viðræðum við Bandaríkjamenn um uppsetningu ratsjárstöðvar í Tékklandi sem yrði hluti af umdeildu eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna í Austur- Evrópu. Stjórnarandstöðuleiðtoginn Jiri Paroubek, leiðtogi Sósíal Demókrata, sagði áður en tillagan var samþykkt að stjórn Topolaneks gæti mögulega setið þar til Tékkar hefðu látið af forystu í Evrópusambandinu. Topolanek segist hins vegar ekki vilja leiða bráðabirgðastjórn. Fulltrúar í Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins telja niðurstöðuna frá í gær ekki áhyggjuefni. Enginn vafi leiki á því að Tékkland geti haldið áfram að gegna forystu í sambandinu.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Sjá meira