Innlent

Ekki hægt að aðhafast vegna leka á lánayfirliti Kaupþings

Ekki er útlit fyrir að Fjármálaeftirlitið geti aðhafst nokkuð vegna leka á lánayfirliti Kaupþings um stærstu lántakendur bankans á erlendu vefsíðunni Wikileaks þar sem hún er utan íslenskrar lögsögu.

Kaupþing krafðist lögbanns á fréttaflutning Ríkisútvarpsins upp úr lánayfirliti bankans um síðustu helgi en féll svo frá því síðastliðinn þriðjudag. Bankaastjóri Kaupþings sagði fréttir um stærstu lántakendur bankans brjóta gegn lögum um bankaleynd og ástæða lögbannsins væri að vernda trúnaðarsamband við núverandi viðskiptavini bankans. Þá fóru lögmenn bankans fram á það við forsvarsmenn vefsíðunnar Wikileaks sem hýsir lánayfirlitið að fjarlægja það þar sem það bryti í bága við íslensk lög um bankaleynd en því var harðneitað. Gunnar Andersen forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir ekki margt í stöðunni. Málið sé utan við íslenska lögsögu.

Fjármálaeftirlitið hyggst þó halda áfram rannsókn málsins og rannsaka hvaðan gögnunum hafi verið lekið. Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari efnahagsbrotadeildar segir að ekki hafi borist formlega kæra til deildarinnar vegna lekans en málið verði kannað í vikunni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×