Innlent

Myndbandið frá afa bjargaði börnunum

Elsta dóttirin gætti systkina sinna heima þegar eldurinn kom upp. Hún hafði daginn áður horft á eldvarnarmyndband og brást því hárrétt við.
Elsta dóttirin gætti systkina sinna heima þegar eldurinn kom upp. Hún hafði daginn áður horft á eldvarnarmyndband og brást því hárrétt við.

 „Þetta var kraftaverk, það er engin spurning. Við erum alveg handviss um að þarna var almættið að verki,“ segir Hildur Jónsdóttir, sex barna móðir á Eyrarbakka. Eldur kom upp í húsi Hildar, Ragnars Kristjáns Gestssonar, eiginmanns hennar, og barna þeirra síðastliðinn miðvikudag. Daginn áður hafði faðir Ragnars, Gestur Ólafsson, sent stutt erlent eldvarnarmyndband í tölvupósti til sonar síns, sem sýndi tveimur elstu börnum sínum myndbandið. Varð það líklega til þess að ekki fór verr en á horfðist.

Hjónin Hildur og Ragnar brugðu sér til Reykjavíkur um miðjan dag á miðvikudaginn. Á meðan gætti elsta dóttir hjónanna, Hrefna Björk Ragnarsdóttir, sem er fjórtán ára, systkina sinna fimm, sem eru allt niður í sjö mánaða gömul. Hrefna hugðist búa til poppkorn og brá sér frá pottinum í andartak. Þegar hún sneri aftur inn í eldhúsið stóð potturinn í ljósum logum með tilheyrandi reykkófi.

„Myndbandið sem Hrefna sá daginn áður sýndi einmitt hvernig á að bregðast við þegar kviknar í olíu í potti, með því að slökkva fyrst undir hellunni og setja svo blautan klút ofan á pottinn, en alls ekki að hella vatni á pottinn því þá breiddist eldurinn víðar. Hrefna brást hárrétt við og náði þannig að slökkva mestan eldinn,“ segir Hildur.

Eldur komst einnig í viftu í eldhúsinu, sem Hrefna gat ekki slökkt. Hún hringdi því í föður sinn, sem sagði henni að láta nágranna vita og fara út með börnin. Nágranninn, Jerry að nafni, sá svo um að slökkva eldinn í viftunni með slökkvitæki. Skömmu síðar kom slökkvilið á vettvang.

Einhverjar skemmdir urðu á eldhúsinu, en Hildur segir það smámuni samanborið við það sem hefði getað gerst hefði Hrefna ekki séð myndbandið daginn áður.

„Maður veit aldrei hvað hefði gerst með sex börn í húsinu. Við erum trúuð fjölskylda og vitum að þarna var æðra vald að verki. Afi barnanna er reyndar ekki trúaður, en við lítum svo á að hann sé óbein tenging frá almættinu,“ segir Hildur og hlær. Engu barnanna varð meint af reyknum og sótinu sem fylgdi eldinum.

kjartan@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×