Myndbandið frá afa bjargaði börnunum 5. september 2009 08:00 Elsta dóttirin gætti systkina sinna heima þegar eldurinn kom upp. Hún hafði daginn áður horft á eldvarnarmyndband og brást því hárrétt við. „
Þetta var kraftaverk, það er engin spurning. Við erum alveg handviss um að þarna var almættið að verki,“ segir Hildur Jónsdóttir, sex barna móðir á Eyrarbakka. Eldur kom upp í húsi Hildar, Ragnars Kristjáns Gestssonar, eiginmanns hennar, og barna þeirra síðastliðinn miðvikudag. Daginn áður hafði faðir Ragnars, Gestur Ólafsson, sent stutt erlent eldvarnarmyndband í tölvupósti til sonar síns, sem sýndi tveimur elstu börnum sínum myndbandið. Varð það líklega til þess að ekki fór verr en á horfðist. Hjónin Hildur og Ragnar brugðu sér til Reykjavíkur um miðjan dag á miðvikudaginn. Á meðan gætti elsta dóttir hjónanna, Hrefna Björk Ragnarsdóttir, sem er fjórtán ára, systkina sinna fimm, sem eru allt niður í sjö mánaða gömul. Hrefna hugðist búa til poppkorn og brá sér frá pottinum í andartak. Þegar hún sneri aftur inn í eldhúsið stóð potturinn í ljósum logum með tilheyrandi reykkófi. „Myndbandið sem Hrefna sá daginn áður sýndi einmitt hvernig á að bregðast við þegar kviknar í olíu í potti, með því að slökkva fyrst undir hellunni og setja svo blautan klút ofan á pottinn, en alls ekki að hella vatni á pottinn því þá breiddist eldurinn víðar. Hrefna brást hárrétt við og náði þannig að slökkva mestan eldinn,“ segir Hildur. Eldur komst einnig í viftu í eldhúsinu, sem Hrefna gat ekki slökkt. Hún hringdi því í föður sinn, sem sagði henni að láta nágranna vita og fara út með börnin. Nágranninn, Jerry að nafni, sá svo um að slökkva eldinn í viftunni með slökkvitæki. Skömmu síðar kom slökkvilið á vettvang. Einhverjar skemmdir urðu á eldhúsinu, en Hildur segir það smámuni samanborið við það sem hefði getað gerst hefði Hrefna ekki séð myndbandið daginn áður. „Maður veit aldrei hvað hefði gerst með sex börn í húsinu. Við erum trúuð fjölskylda og vitum að þarna var æðra vald að verki. Afi barnanna er reyndar ekki trúaður, en við lítum svo á að hann sé óbein tenging frá almættinu,“ segir Hildur og hlær. Engu barnanna varð meint af reyknum og sótinu sem fylgdi eldinum. kjartan@frettabladid.is
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Sjá meira