Leikhúsgestum fækkar um 25 þúsund 25. mars 2009 09:32
Hagstofan hefur tekið saman tölur um fjölda leikhúsgesta á leikárinu 2007/2008 en samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga nam ríflega 414 þúsundum á síðasta leikári. Þetta samsvarar því að hver landsmaður hafi sótt leiksýningu 1,3 sinnum á leikárinu. Gestum fækkaði nokkuð frá fyrra leikári - leikárinu 2006/2007 - eða um tæplega 25 þúsund gesti, sem samsvarar fækkun gesta um 5,7 af hundraði. Á síðasta leikári voru settar upp á fjalirnar 231 uppfærsla. Sýningar voru 3.339 talsins. Tölurnar frá Hagstofunni eru nokkuð ítarlegar en þar segir einnig að þrátt fyrir nokkra fækkun á síðasta leikári hafi fjöldi gesta aukist undangengin ár, en gestir voru tæpleag 23 þúsund fleiri á síðasta leikári en árið 2001. LeikhúsÁ síðasta leikári voru starfrækt sex atvinnuleikhús með aðstöðu í fimm leikhúsum. Á vegum þeirra voru 12 leiksvið sem rúmuðu 2.798 gesti í sæti. Leikhúsin settu 78 uppfærslur á svið hér innanlands, þar af voru leikrit flest, 46 talsins. Samanlagður fjöldi sýninga var 1.205. Uppfærslur með verkum eftir íslenska höfunda voru 33, en eftir erlenda 38. Uppfærslur verka eftir innlenda og erlenda höfunda voru sjö. Leikhúsgestir voru samtals 275.207, að meðtöldum samstarfsverkefnum og gestasýningum. Sýningargestum leikhúsanna fjölgaði um ríflega 16 þúsund frá fyrra leikári. AtvinnuleikhóparAtvinnuleikhópum hefur fjölgað talsvert undanfarin ár. Leikhópar sem settu upp eina eða fleiri leiksýningar á síðasta ári voru 39 talsins samanborið við 22 leikárið 2000/2001. Á síðasta leikári settu hóparnir á svið innanlands 84 uppfærslur. Leikrit og verk eftir innlenda höfunda eru uppistaðan í uppfærslum atvinnuleikhópa. Sýningar atvinnuleikhópa innanlands voru 1.925 að meðtöldum sýningum í samstarfi við leikhús og sýningum í skólum. Heildaraðsókn að þessum sýningum var 178.125. Sýningargestum fækkaði um 34 þúsund frá leikárinu 2006/2007. ÁhugaleikfélögÁ næstliðnu leikári færðu 35 áhugaleikfélög upp á fjalirnar 81 leiksýningu víðs vegar um landið. Þrjár af hverjum fjórum uppfærslum voru leikverk eftir innlenda höfunda. Fjölmargir einstaklingar koma að uppfærslum áhugaleikfélaga á ári hverju. Samanlagður fjöldi flytjenda á síðasta leikári var hátt í 1.600 manns. Félögin sýndu 457 sinnum fyrir um 30 þúsund gesti. Árleg gagnasöfnun Hagstofunnar um leiksýningar tekur til leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga. Tölur eru fengnar með góðfúslegu samþykki frá viðkomandi leikhúsum og leikhópum.
Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira