Framsókn toppaði of snemma 26. mars 2009 11:16 Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur.
Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, telur að Framsóknarflokkurinn hafi toppað of snemma þegar flokkurinn var á miklu flugi í skoðanakönnum í kjölfar landsfundar í janúar. Frá þeim tíma hafi margt breyst og ný ríkisstjórn verið mynduð fyrir tilstilli flokksins. Fylgi Framsóknarflokksins er nú 7,5% og hefur ekki mælst minna á árinu í skoðanakönnunum Fréttablaðsins. Það er tæpum 5% minna en flokkurinn mældist með fyrir hálfum mánuði. Flokkurinn hlaut sjö þingmenn kjörna í kosningunum 2007 en samkvæmt könnuninni fengi flokkurinn fimm þingmenn. Skömmu eftir landsfund flokksins í janúar mældist stuðningur við flokkinn á bilinu 15 til 17%.Breytingar mældust vel fyrir í janúar Stefanía segir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi verið kjörinn formaður flokksins nokkuð óvænt þar sem um ungan og óreyndan stjórnmálamann hafi verið að ræða. „Í janúar þótti það mikill kostur en þá var mikil óánægja með ríkisstjórnina og fólk kallaði eftir breytingum," segir Stefanía og bætir við að á sama tíma hafi Barack Obama verið að taka við sem forseti Bandaríkjanna. Í þessu andrúmslofti hafi breytingar á forystu Framsóknarflokksins mælst vel fyrir. Mikið vatn runnið til sjávar Frá því í janúar hefur ný ríkisstjórn verið mynduð, boðað hefur verið til kosninga og ljóst að breytingingar verði á forystu Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar á landsfundum flokkanna um helgina. Stefanía segir að það sé klúðurslegt að gagnrýna ríkisstjórnina á sama tíma og Framsóknarflokkurinn styðja hana og formaðurinn tali um að mynda meirihlutastjórn með vinstriflokkunum eftir kosningar. Stefanía bendir jafnframt á að tillögur flokksins um niðurfellingu 20% einstaklinga hafi verið harðlega gagnrýndar. „Jafnframt hefur Morgunblaðið verið að rifja upp einkavæðingu bankanna og það virðist vera erfitt fyrir Framsóknarflokkinn að hylja spor fortíðarinnar."
Tengdar fréttir Ríkisstjórnarflokkarnir fengju traustan meirihluta Ríkisstjórnarflokkarnir tveir fengju traustan meirihluta á þingi, ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar tvö, en fylgið hrynur af Framsóknarflokknum. 26. mars 2009 08:21 Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin Sjá meira
Ríkisstjórnarflokkarnir fengju traustan meirihluta Ríkisstjórnarflokkarnir tveir fengju traustan meirihluta á þingi, ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar tvö, en fylgið hrynur af Framsóknarflokknum. 26. mars 2009 08:21