Lét fjórtán ára stúlku fróa sér 13. júlí 2009 15:16 Héraðsdómur Norðurlands eystra.
Tuttugu og þrigga ára karlmaður var í dag dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi norðurlands eystra fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára stúlku. Hann var einnig dæmdur til greiðslu 200.000 króna í miskabætur til fórnarlambsins. Brotin áttu sér stað í febrúar á þessu ári. Maðurinn hafði kynnst stúlkunni á samskiptaforriti á netinu og féllst hún á að hitta hann. Fóru þau saman í bíltúr þar sem maðurinn stöðvaði bílinn á afviknum stað og hófust þar gagnkvæm atlot milli mannsins og stúlkunnar. Í þessum atlotum káfaði maðurinn innanklæða á brjóstum stúlkunnar og utanklæða á rassi og lærum hennar. Því næst lét hann stúlkuna fróa sér. Maðurinn játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og var framburður hans þar í samræmi við framburð hans hjá lögreglu. Þegar brotin áttu sér stað var maðurinn 23 ára en stúlkan fjórtán ára og þriggja mánaða og segir í dómnum að báðum aðilum hafi verið ljóst um aldur hvors annars. Í dómnum segir að í málinu hafi ákærði gerst sekur um kynferðisbrot gagnvart unglingsstúlku, er var rétt liðlega 14 ára er atvik gerðust. Með háttseminni hafi maðurinn brotið gegn lagaákvæði um kynferðislegan lágmarksaldur sem sé miðaður við fimmtán ár. Refsilágmark vegna brota gegn þessari málsgrein er eins árs fangelsi. Tilgangur ákvæðisins er að vernda börn og ungmenni fyrir að lifa kynlífi áður en þau hafa andlegan og líkamlegan þroska til þess. Brot mannsins var alvarlegt og beindist gegn mikilvægum hagsmunum, að því er segir í dómnum. „Er ákærði framdi brotið var hann 23 ára og kemur því ekki til álita að lækka refsingu eða fella hana niður. Það breytir og engu þótt stúlkan hafi verið fús til að hafa við hann kynferðislegt samneyti," segir í dómnum. Fullnustu refsingar verður þó frestað haldi maðurinn almennt skilorð.
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Fleiri fréttir Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Sjá meira