Álftanesi skipað að ræða sameiningu 18. desember 2009 03:00 Gjaldþrot blasir við Það var ekkert sérstaklega hýrt yfir íbúum Álftaness á fundi með bæjarstjórn, ráðgjöfum og eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga í gærkvöldi.fréttablaðið/valli
Meirihluti sveitarstjórnar Álftaness samþykkti í gær samkomulag við eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaganna. Samkvæmt því skal þegar hefja viðræður við önnur sveitarfélög um sameiningu við Álftanes. Þá verður lagt tíu prósenta álag á útsvar á næsta ári og álagning fasteignaskatta verður 0,4 prósent af álagningarstofni. Hún er í dag 0,28 prósent. Almennt á að lækka öll rekstrarútgjöld og auka tekjur, meðal annars með eignasölu. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti mun beita sér fyrir fyrirframgreiðslu úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að greiða laun og forgangskröfur fyrir Álftanes upp á 185 milljónir króna. Pálmi Þór Másson bæjarstjóri sagði á íbúafundi á Álftanesi í gærkvöld að þetta þýddi að sveitarfélagið myndi þegar í stað hefja viðræður við önnur sveitarfélög. „Það hefur ekki rætt um það hvaða sveitarfélög það eru, en Garðabær hefur verið títtnefndastur í því efni,“ sagði hann. Aðgerðirnar kæmu á versta tíma, því álögur ríkis hækkuðu um leið. „Heildarálögur á Álftnesinga verða talsvert hærri en á einstaklinga almennt,“ sagði hann. Ef samkomulagið hefði ekki verið undirritað hefði sveitarfélagið farið í þrot fyrir áramót. Samkomulagið hefur einnig í för með sér að athugað verður hvaða ákvarðanir, allt frá 2005, hafi leitt bæinn í þá stöðu sem hann er í. Hvort þær hafi verið í samræmi við sveitarstjórnarlög og hvort upplýsingaskyldu hafi verið sinnt með fullnægjandi hætti. Ólafur Nilsson, formaður eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, sagði á fundinum að sveitarstjórnin í heild sinni bæri einhverja ábyrgð á því hvernig komið er. Afar mikilvægt væri að hún snéri bökum saman og leitaði lausna á ástandinu. Erling Ásgeirsson, formaður bæjarráðs í Garðabæ, segir að sameining við Álftanes yrði skoðuð undir jákvæðum formerkjum: „Ég tel að það væri eðlilegur framgangsmáti að reyna fyrst sameiningu við Garðabæ.“ Erling leggur áherslu á að íbúar beggja sveitarfélaganna fengju að kjósa um sameininguna og bendir á að ríkisvaldið verði að afskrifa einhverjar skuldir Álftaness. Færi sveitarfélagið í þrot hefði það víðtækar afleiðingar fyrir lánshæfismat annarra sveitarfélaga. Inngrip í vanda Álftaness væru smáaurar í því samhengi. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fleiri fréttir Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Sjá meira