Hyggst halda ótrauður áfram 18. desember 2009 04:30 Silvio Berlusconi Forsætisráðherrann útskrifaður af sjúkrahúsi.Nordicphotos/AFP
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, var myrkur á svip þegar hann yfirgaf sjúkrahúsið í Mílanó, þar sem hann hefur dvalist síðan ráðist var á hann á sunnudag. Hann virtist veikburða þegar hann veifaði til ljósmyndara úr bifreið sinni. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér sagðist hann ætla að halda áfram af enn meiri styrk og ákveðni en hingað til. Berlusconi var með umbúðir yfir hluta andlits síns, þar á meðal nefinu sem brotnaði þegar árásarmaðurinn sló hann með þungum minjagrip. Tvær tennur brotnuðu einnig. „Það er tvennt sem ég mun minnast frá þessum dögum: Hatur hinna fáu og ást hinna mörgu, mörgu Ítala,“ sagði í yfirlýsingunni. Fyrir árásina hafði Berlusconi kvartað undan því að hann væri orðinn fórnarlamb andrúmslofts haturs, en hann hefur undanfarið sætt harðri gagnrýni bæði vegna kynlífshneykslis og spillingarmála. Eftir árásina hafa fjölmargir Ítalir lýst yfir samúð með honum, en einnig hafa sumir hrósað árásarmanninum, sem nú situr í fangelsi í Mílanó. Læknar hafa fyrirskipað Berlusconi að hafa hægt um sig fram yfir jól.- gb
Mest lesið Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Ísland land númer 197 Innlent Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Erlent Þurftu að finna lausn á uppskáldaðri hryðjuverkaárás á Íslandi Innlent Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Erlent Fjöldauppsagnir á Keflavíkurflugvelli Innlent Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Erlent Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Erlent Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Innlent Fleiri fréttir Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Misstu allt samband við Internetið Erlendir miðlar fjalla um gjaldþrot Play Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Mafíósar dæmdir til dauða Öruggur um að brátt ríki friður á Gasa Freista þess að koma aðildarumsókn Úkraínu fram hjá Orbán Adams hættir og Cuomo og Mamdani skiptast á skotum Fyrrverandi landgönguliði drap að minnsta kosti fjóra í Michigan Evrópusinnar héldu meirihluta í Moldóvu Orrustuþotur yfir Borgundarhólmi og drónar trufla flug í Noregi Fjöldi fórnarlamba eftir skothríð og íkveikju í kirkju mormóna Æðsti leiðtogi mormóna látinn Banna dróna yfir Danmörku Óttast úrbræðslu vegna rafmagnsleysis í kjarnorkuveri Sjálft lýðræðið undir er Moldóvar ganga til kosninga Vill fá Trump til að gefa Taívan upp á bátinn Segist hafa hafnað boði til einkaeyju Epsteins Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Sjá meira