Olmert vildi landtökusvæðin 18. desember 2009 03:30 Mahmoud Abbas Ítrekaði í gær kröfur um að Austur-Jerúsalem yrði höfuðborg Palestínu.fréttablaðið/AP
Ehud Olmert, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, bauð Palestínumönnum 5,8 prósent af landsvæði Ísraels, bæði við Gasasvæðið og Vesturbakkann, í skiptum fyrir 6,3 prósent af landsvæði Vesturbakkans. Á svæðunum sem Olmert vildi fá frá Palestínumönnum búa 75 prósent þeirra landtökumanna sem lagt hafa undir sig palestínskt land á Vesturbakkanum. Frá þessu er skýrt á vefsíðu ísraelska dagblaðsins Haaretz. Þar er einnig haft eftir Mahmoud Abbas, forseta Palestínustjórnar, að samninganefnd Ísraela hafi lagt fram margvísleg tilboð. Þetta tiltekna tilboð er sagt hafa verið sett fram hinn 16. september árið 2008, þegar Olmert átti erfitt með að bjóða trúverðuga samninga vegna spillingarmála sem höfðu veikt stöðu hans mjög. Daginn eftir tapaði Olmert í leiðtogakjöri stjórnmálaflokks síns, Kadima. Palestínumenn svöruðu ekki tilboðinu og viðræðurnar náðu engu skriði, þótt stefnt hafi verið að því að ljúka þeim fyrir árslok. Endanlega slitnaði síðan upp úr viðræðum þegar Ísraelar hófu innrás sína á Gasasvæðið í lok desember. Undanfarna mánuði hefur strandað á því að Ísraelar neita að stöðva framkvæmdir á landtökusvæðum á Vesturbakkanum og í austanverðri Jerúsalem.- gb
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira