Innlent

Fara fram á að sjá könnun stjórnarinnar

Upplýsinga- og kynningarmálastjóri LÍÚ segist vilja sjá niðurstöður könnunar á áhrifum fyrningarleiðarinnar sem forsætisráðherra sagði stjórnina hafa gert.
fréttablaðið/pjetur
Upplýsinga- og kynningarmálastjóri LÍÚ segist vilja sjá niðurstöður könnunar á áhrifum fyrningarleiðarinnar sem forsætisráðherra sagði stjórnina hafa gert. fréttablaðið/pjetur

Sigurður Sveinn Sverrisson, upplýsinga- og kynningarmálastjóri LÍÚ, segist undrast það að ríkisstjórnin sé ekki tilbúin að kynna könnun sem hún lét gera á áhrifum fyrningarleiðar.

„Forsætisráðherra sagði í Kastljósi 11. maí að stjórnin hafi kannað þetta,“ segir Sigurður Sveinn. „Því spyrjum við; hver gerði þessa könnun, hvernig var hún gerð, hver er niðurstaðan og af hverju er hún ekki kynnt?“

LÍÚ berst af fullum þunga fyrir því að fyrningarleið verði ekki farinn.

Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps hefur ályktað að það skori á stjórnvöld að koma fram með útfærslu á aðgerðunum og könnun á áhrifum hennar. Segir Ómar Már Jónsson sveitarstjóri að án þessara upplýsinga verði umræðan lítt til gagns. Enn fremur skorar hann á stjórnvöld að láta ekki af aðgerðunum nema þá ef slíkar kannanir sýni að þær séu óhagkvæmar fyrir þjóðfélagið í heild.

Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingar, sagði í Fréttablaðinu 4. apríl síðastliðinn að fyrningarleiðin hefði ekki verið útfærð „í smáatriðum“ eins og hann komst að orði. - jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×