Lögreglan kölluð í „blóðugt“ partý 28. október 2009 13:42 Mynd úr safni/Stefán Karlsson
Það er ekki bara í Bandaríkjunum sem menn halda ærlega upp á hrekkjuvökuna. Slíkt er líka gert á Íslandi en það varð einmitt tilefni til afskipta lögreglu á ónefndum stað á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Lögreglu bárust fréttir af grunsamlegum vettvangi og fylgdi sögunni að þar væri allt útatað í blóði. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að hún hafi haldið strax af stað en þegar þangað kom blasti við hús þar sem allt var með kyrrum kjörum. „Inn um glugga mátti hinsvegar sjá að ekki var allt með felldu. Tekin var sú ákvörðun að fara inn í húsið en þegar inn var komið sáust blóðug fótspor og blóð á veggjum. Þar hafði samt ekki verið framið neitt voðaverk og allt átti þetta sér eðlilegar skýringar. Við nánari skoðun kom í ljós að um gerviblóð var að ræða og þegar náðst hafði í húsráðanda gat hann ennfremur skýrt frá því að nýbúið væri að halda hrekkjavökupartí í húsinu. Við svo búið var farið af vettvangi en vegna þessa skal samt áréttað að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna en einu sinni of sjaldan," segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Fleiri fréttir Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Sjá meira