Arnarnesræningjar neita að hafa hótað 23. júní 2009 01:00 fyrir dómara Hér sést annar ákærðu mannanna leiddur fyrir dómara í apríl . fréttablaðið/vilhelm
Aðalmeðferð hófst í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur yfir fjórum ungmennum sem rændu eldri hjón á Arnarnesi í apríl síðastliðnum. Fólkið er allt ákært fyrir húsbrot, rán og brot gegn frjálsræði manna. Þá eru þau öll sökuð um að hafa tekið ákvörðun um ránið í félagi hvert við annað og teljast því meðsek í málinu, þrátt fyrir að hafa átt mjög mismikinn þátt í því. Tveir menn, 22 og 31 árs, eru ákærðir fyrir að ryðjast inn í hús hjónanna, ráðast á þau, halda þeim í gíslingu og ræna þau. Tvær stúlkur, 20 og 17 ára, eru ákærðar fyrir að leggja á ráðin um ránið og bíða mannanna í bíl. Yngri stúlkan er barnabarn mannsins sem var rændur. Við vitnaleiðslur kom fram að fólkið hefði allt verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna þegar ránið var framið. Ætlunin hefði upphaflega verið að ræna mannlaus hús til þess að fjármagna fíkniefnakaup. Stúlkurnar tvær og annar mannanna keyrðu um Arnarnesið og önnur stúlkan benti hinum á hús afa síns og stjúpömmu við Mávanes. Þau hafi séð ljós í húsinu og þess vegna ákveðið að fá hinn manninn með í ránið. Yngri maðurinn bar fyrir dómi að hann hefði ekki vitað að um rán væri að ræða heldur hefði hann verið beðinn um að hjálpa til við búslóðarflutninga. Hinir sakborningarnir þrír sögðu þó allir að honum hefði verið fullljóst að rán væri ætlunin. Mönnunum er gefið að sök að hafa ruðst inn á heimili hjónanna þegar konan kom til dyra. Þá mun sá eldri hafa tekið fyrir vit hennar, snúið hana niður í gólfið og svo slegið hana þremur þungum höggum í höfuðið. Hinn hafi á sama tíma farið á neðri hæð hússins þar sem maðurinn var, lagt hníf að honum og hótað að stinga hann. Hann hafi svo hótað báðum hjónunum lífláti á meðan félagi hans fór um húsið í leit að verðmætum. Þeir skáru svo á símasnúrur og hótuðu að skjóta hjónin áður en þeir fóru. Yngri maðurinn sagðist fyrir dómi ekki hafa haft í hótunum við hjónin. Sá eldri neitaði líka að hafa hótað hjónunum og slegið konuna. Hvorugur þeirra kannaðist við að hafa skorið á símalínurnar. Fram kom fyrir dómi að mennirnir höfðu aldrei hist fyrr en í ráninu. Stúlkurnar tvær hafa hins vegar verið vinkonur frá því þær kynntust í meðferð á Vogi fyrir um ári. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Innlent Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Innlent Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Innlent Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Innlent Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Innlent Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar Innlent „Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Innlent Geta greint frá svörum Þorgerðar ef hún gefur leyfi Innlent „Það þarf ekki alveg að halda sig innandyra“ Innlent Fleiri fréttir Einfaldlega nýnastistar sem þýði meira ofbeldi og átök Lögreglan lýsir eftir Sindra Péturssyni Fordæma Hamas og segja áform um „mannúðarborg“ óviðunandi Stofna grunnskóla fyrir einhverf börn í Garðabæ Loftgæði versnandi á gosstöðvunum Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Sex spænskar orrustuþotur á leið til landsins Hafa tapað tvö hundruð milljónum króna vegna fjársvika Hafa sótt um bráðabirgðaleyfi Vill vita hvaða samningar eru í undirbúningi gagnvart ESB Verði fram á nótt að slökkva eld í trjákurlinu Geta greint frá svörum Þorgerðar ef hún gefur leyfi Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar „Það þarf ekki alveg að halda sig innandyra“ „Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Mesta mengun frá upphafi eldsumbrota og deilt um utanríkismálin Tveggja katta enn saknað eftir eldsvoða á Tryggvagötu Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Kviknaði í haug af timburkurli „Þetta er ekki eiturgas“ Glæsilegt útilistaverk hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi Sjá meira