Bandaríkjastjórn hikar í Afganistan 13. nóvember 2009 05:00 Bandarískir hermenn gengu fylktu liði í New York á miðvikudag, þegar minnst var loka fyrri heimsstyrjaldarinnar. nordicphotos/AFP
Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort fjölgað verði í herliði Bandaríkjamanna í Afganistan. Í sumar sagði bandaríski hershöfðinginn Stanley McChrystal, sem er yfirmaður fjölþjóðaliðs NATO og Bandaríkjanna í Afganistan, nauðsynlegt að fá fjörutíu þúsund bandaríska hermenn til landsins í viðbót við þá sem fyrir eru. Að öðrum kosti væri engin von til þess að sigur næðist í baráttu við talibana og aðra uppreisnarhópa. Nú stígur hins vegar Karl Eikenberry, sendiherra Bandaríkjanna í Kabúl, fram og segir mesta óráð að senda fleiri hermenn til Afganistans. Eikenberry er fyrrverandi herforingi og var um tíma yfirmaður fjölþjóðaliðs NATO og Bandaríkjanna í Kabúl. Hann hefur síðustu daga sent hvert bréfið á fætur öðru til stjórnvalda í Washington þar sem hann segir allt of mikla óvissu ríkja um stöðu og áform Hamids Karzais forseta til þess að verjandi sé að veita honum frekari stuðning. Karzai hafi engan veginn sýnt fram á getu sína til þess að ráðast gegn spillingu í stjórn sinni. Eikenberry telur einnig að fjölgun bandarískra hermanna í Afganistan geri Afgana enn háðara Bandaríkjunum, sem væri í andstöðu við öll markmið um að hjálpa þjóðinni til sjálfstæðis. Á miðvikudag átti Obama fund með hópi yfirmanna úr hernum, „stríðsráði“ sínu svonefndu, þar sem þeir kynntu fyrir honum fjórar tillögur að framhaldi aðgerðanna í Afganistan. Snerust þær allar um að fjölga hermönnum, en þó mismikið. Vonast hafði verið til að þetta yrði lokafundur Obamas með stríðsráðinu áður en hann tæki ákvörðun, en hann hafnaði öllum tillögunum. Efasemdir Eikenberrys um Karzai eiga hljómgrunn meðal bandarískra ráðamanna. Í gær sagðist Hillary Clinton utanríkisráðherra hafa áhyggjur af „spillingu, skorti á gegnsæi, lélegu stjórnarfari og vanburða réttarríki“ í Afganistan. Karzai tekur í næstu viku formlega við öðru kjörtímabili sínu sem forseti. Mótframbjóðandi hans, Abdullah Abdullah, dró framboð sitt til baka áður en önnur umferð kosninganna átti að fara fram, meðal annars vegna efasemda um réttmæti kosninganna. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Sjá meira