Innlent

Kvenkyns bílþjófur og ungir númeraþjófar á ferð í gærkvöldi

Lögreglan hafði hendur í hári bílþjófs í Hafnarfirði í gærkvöldi en um var að ræða konu á þrítugsaldri. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að þrír hafi verið með henni í bílnum þegar lögreglan kom á vettvang og reyndist einn þeirra vera eftirlýstur fyrir aðrir sakir. Sá var því einnig handtekinn.

„Fyrr um daginn gómaði lögreglan þrjá pilta, 16 og 17 ára, sem voru að stela skráningarnúmerum af bíl í Kópavogi," segir ennfremur en ætlun þjófanna var að setja númerin á bíl annars þeirra sem var að verða bensínlaus. Að því búnu stóð til að að fara á bensínstöð og taka eldsneyti en aka svo á brott án þess að greiða fyrir það.

Lögreglan segir þessa aðferð vel þekkta á meðal bensínþjófa sem reyna að villa á sér heimildir með þessum hætti.

Þá kemur einnig fram að fleiri óprúttnir aðilar hafi verið á ferð í Kópavogi því tilkynnt var um þjófnað á dekkjum. Um var að ræða fjögur dekk sem höfðu verið tekin undan bíl sem var á bifreiðastæði við verkstæði í bænum. Eiganda bílsins brá að vonum þegar hann kom að bílnum en tjónið er verulegt.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×