Innlent

Starfskjör skert á Kragasjúkrahúsum

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra.
Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra.
Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu kemur beint eða óbeint niður á heildarlaunum starfsmanna á svokölluðum Kragasjúkrahúsum vegna hagræðingar. Með Kragasjúkrahúsum er átt við St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og heilbrigðisstofnanirnar á Suðurlandi og á Suðurnesjum.

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, kynnti á blaðamannafundi í dag helstu þætti þeirra aðgerða sem gripið verður til og undirbúnar hafa verið síðustu vikurnar til að mæta kröfum um hagræðingu í heilbrigðisþjónustunni í Kragasjúkrahúsunum. Ögmundur lagði áherslu á að aðlaga starfsemi stofnananna og meginstarfsemi Landspítalans til lengri tíma.

Á St. Jósefsspítala verður skorið niður 9,5% af fjárlögum ársins, á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja um 5,2% og 5,6% á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Á vef heilbrigðisráðuneytisins segir að niðurskurðurinn komi beint og óbeint fram í heildarlaunum eða kjörum starfsmanna enda byggist hann á:

    * samdrætti í yfirvinnu (fastri og tímamældri) og vaktagreiðslum

    * uppsögn eða samdrætti í verktakagreiðslum til lækna, og hækkun aðstöðugjalds þeirra

    * breyttu verklagi við mönnun aukavakta

    * færri stjórnunarstöðum

    * samdrætti í akstursgreiðslum

    * samdrætti í rannsóknarkostnaði og hagræðingu í almennum innkaupum

    * niðurskurði í námsleyfis- og ferðakostnaði



Fleiri fréttir

Sjá meira


×