Innlent

Fórnarlamb svínaflensu: „Eins og hver önnur flensa“

Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar
Maðurinn þurfti ekki að leggjast inn á spítala vegna flensunnar.
Maðurinn þurfti ekki að leggjast inn á spítala vegna flensunnar. Mynd/ Vilhelm

„Þetta var bara eins og hver önnur flensa," segir tvítugur karlmaður sem situr nú heima í sóttkví, smitaður af svínaflensu. Maðurinn er nýkominn frá Ástralíu þar sem hann dvaldi í sex vikur ásamt fjölskyldu sinni. Kærasta mannsins smitaðist einnig af flensunni en aðrir fjölskyldumeðlimir virðast hafa sloppið.

Nokkrir dagar eru síðan maðurinn greindist. Hann segir að fyrstu einkenni hafi verið eins og um venjulega flensu væri að ræða. „Þetta voru hiti, kvef og hálsbólga. Af því að ég var búinn að vera úti og svona mikið búið að fjalla um þessa flensu ákvað ég að láta kíkja á mig," segir maðurinn sem fékk þá þau svör að hann væri smitaður af Svínaflensunni alræmdu, H1N1.

Hann segist aldrei hafa óttast um líf sitt vegna flensunnar. „Nei ég gerði það nú ekki. Ég fékk strax tamiflu og þetta hafa kannski verið tveir dagar sem ég var veikur. Síðan þá hef ég bara verið slappur."

Þeim sem smitast af svínaflensu er ráðlagt að halda sig innandyra í viku eftir að fyrstu einkenni koma fram en eftir það er talið að fólk sé hætt að smita. Maðurinn segir erfiðast að hafa þurft að vera inni í því blíðskaparveðri sem hefur verið hér á landi undanfarna daga. „Það er miklu erfiðara að hanga inni en að vera veikur. Ég hef rétt getað kíkt út á pall öðru hvoru." Hann þurfti þó ekki að leggjast inn á spítala vegna flensunnar.

Maðurinn kýs að koma ekki fram undir nafni af ótta við að móðursýki grípi um sig í hverfinu sem hann býr, enda vilja fæstir grípa flensuna. Hann segist þó sáttur við að hafa fengið hana núna frekar en seinna þegar hún er jafnvel búin að stökkbreyta sér. „Nú er ég kominn með bóluefni að mér skilst, svo það er fínt að vera búinn að klára þetta."








Tengdar fréttir

Talið að helmingur þjóðarinnar muni smitast af svínaflensu

Sóttvarnalæknir býst við að annar hver Íslendingur veikist af inflúensu H1N1 eða svínaflensu í vetur. Bretar og Norðmenn munu bjóða öllum þegnum landanna bólusetningu, en hér verður aðeins til bóluefni fyrir helming íslensku þjóðarinnar.

Íslensk stúdína á Nýja Sjálandi með svínaflensuna

„Ég er ekkert hræddari núna en þegar maður fær venjulega flensu," segir Freyja Oddsdóttir, 25 ára stúdína á Nýja Sjálandi. Hún liggur rúmföst um þessar mundir með hausverk, hita, beinverki og ljótan hósta - líklegast smituð af svínaflensu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×