Lögregla keyrði á tónlistarmann 22. janúar 2009 07:45 Árni segir sárt að uppskera bíl í fangið og kylfu í bakið fyrir friðsamleg mótmæli. MYND/fréttablaðið/valli „
Ég stóð þarna og var að láta skoðun mína í ljós, án ofbeldis af nokkru tagi, og uppskar lögreglubíl í fangið og kylfu í bakið,“ segir Árni Rúnar Hlöðversson, tónlistarmaður og meðlimur í hljómsveitinni FM Belfast. Árni segir lögreglubíl með fanga innanborðs hafa keyrt á sig á leið frá Alþingishúsinu í mótmælunum á þriðjudag. „Ég stóð þarna við húsið sem er við hliðina á Alþingishúsinu og stillti mótmælum mínum algjörlega í hóf, ég kastaði engu og lyfti ekki hendi. Þá keyrði lögreglubíll í ofboði á mig og þegar hann var horfinn komu á vettvang aðrir lögregluþjónar sem börðu mig í bakið með kylfum,“ segir Árni og bætir við að hann hafi fengið áverkavottorð á slysadeild og ætli sér að kæra atvikið. „Ég er ekki lífshættulega slasaður, en ég er bólginn á öxlum. Ég hvet alla sem lent hafa í svipuðu til að kæra, þótt vonin um árangur af slíku sé ekki mikil. Kærufjöldinn skiptir líka miklu máli.“ Árni segir lögregluna hafa misst gjörsamlega stjórn á sér fyrir framan Alþingishúsið. „Þeim fannst eins og allir væru að ógna sér, en sú var ekki raunin. Það er ansi sárt að ætla sér að mótmæla á friðsaman hátt og verða fyrir svona árás í staðinn,“ segir Árni Rúnar Hlöðversson. - kg
Mest lesið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Fleiri fréttir Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Sjá meira