Ohio notar eitt lyf við aftöku - fyrst ríkja Atli Steinn Guðmundsson skrifar 9. desember 2009 08:45 Glittir í mótmælaspjald við brottflutning líks Brios, nafnið er manneskjunnar sem hann varð að bana.
Ohio varð í gær fyrsta ríki Bandaríkjanna til þess að taka dauðadæmdan mann af lífi með því að nota aðeins eitt lyf. Það var Kenneth Brios, dæmdur morðingi, sem var úrskurðaður látinn rétt fyrir hádegi í gær að bandarískum tíma. Hann var fyrsti fanginn sem Bandaríkjamenn lífláta með lyfjagjöf og nota til þess aðeins eitt lyf, þíópental sódíum, í stað blöndu þriggja lyfja sem hin 35 dauðarefsingarríkin nota enn þá. Nýja aðferðin er tekin upp í kjölfar vandræða sem upp komu með fangann Romell Broom í sumar en aftöku hans var að lokum frestað eftir að aftökusveitinni tókst engan veginn að finna nægilega burðuga æð í handlegg hans til að sprauta hinum hefðbundnu þremur lyfjum í. Lögfræðingar Brios mótmæltu aftökunni í gær harðlega og sögðu að líkja mætti henni við tilraunir á fólki og bæri yfirvöldum að reyna lyfið og aðferðina til hlítar áður en beitt væri við aftöku. Deborah Denno, sérfræðingur í aftökuaðferðum við Fordham-háskólann í New York, sagði nýju aðferðina boða gott. Lyf númer tvö í röðinni af hinum hefðbundnu þremur ylli hinum dauðadæmda jafnan miklum óþægindum svo nýja aðferðin væri mannúðlegri. Systir fórnarlambs Brios, sem var viðstödd aftökuna í gær, sagði hins vegar að hann hefði farið allt of mjúklega yfir móðuna miklu svo sínum augum lítur hver silfrið.
Mest lesið Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Kom ráðherra á óvart að viðræðum hefði verið slitið Innlent Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Erlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Erlent Gæti stefnt í þungavigtarslag um varaformannsembættið Innlent Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Fleiri fréttir Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Misstu allt samband við Internetið Erlendir miðlar fjalla um gjaldþrot Play Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Sjá meira