Stal og vildi selja fíkniefni 14. desember 2009 01:00 Héraðsdómur Suðurlands Fólkið var ákært fyrir Héraðsdómi Suðurlands.
Tvítug kona hefur verið ákærð fyrir innbrot, þjófnaði og afhendingu fíkniefna í söluskyni. Konan stal, í anddyri Fjölbrautaskólans í Garðabæ í byrjun árs 2008, leðurstígvélum og tösku sem innihélt muni að verðmæti á annað hundrað þúsund króna. Síðar á árinu var hún tekin með kannabisefni og amfetamín heima hjá sér, ætlað til sölu. Þá er konan ákærð fyrir að hafa afhent tæplega tvítugum manni rúmlega þrjú grömm af amfetamíni í söluskyni. Maðurinn afhenti efnin síðan öðrum manni, einnig í söluskyni. Andvirði efnanna, tuttugu þúsund krónur, hafði ekki fengist greitt. Enn er konan, nú ásamt stúlku og pilti, báðum undir tvítugu, ákærð fyrir innbrot og þjófnaði. Þeim er gefið að sök að hafa í sameiningu brotist inn í þrjú sumarhús í landi Ásatúns í Hrunamannahreppi. Þremenningarnir létu greipar sópa í öllum húsunum. Meðal annars var stolið úr þeim þremur sjónvarpstækjum, mínútugrilli og örbylgjuofni. Einnig matvinnsluvél, vöfflujárni og sængurfötum. Loks stálu þremenningarnir frosinni matvöru og vodkaflösku.- jss
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira