Kirkjan hélt hlífiskildi yfir níðingum 27. nóvember 2009 00:15 Ljót saga Kross þessi var reistur í Dublin árið 1979 þegar Jóhannes Páll II. páfi kom þangað í heimsókn.nordicphotos/AFP
Kaþólska kirkjan á Írlandi gætti þess áratugum saman að ekkert fréttist opinberlega af framferði presta sem níddust á börnum. Kirkjan kaus að gæta orðspors síns frekar en að styðja fórnarlömbin. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar sem undanfarin þrjú ár hefur grandskoðað leyniskjöl kirkjunnar um þessi mál. Rannsóknin nær til brota sem framin hafa verið í umdæmi kirkjunnar í höfuðborginni Dublin á árunum 1975-2004. Fram kemur í skýrslunni að erkibiskupar kaþólsku kirkjunnar í Dublin hafi á þessu tímabili gætt þess að halda brotum prestanna leyndum fyrir lögreglunni til að koma í veg fyrir umtal, en þess í stað flutt þá í annað prestsdæmi. Ríkisstjórn Írlands baðst í gær afsökunar á að ríkið hefði ekki dregið yfirvöld kaþólsku kirkjunnar til ábyrgðar. Fulltrúar fórnarlamba kirkjunnar sögðust fagna rannsókninni, en tóku þó fram að bæði kirkjan og stjórnvöld á Írlandi ættu margt eftir ógert til að bæta fyrir misgjörðir af þessu tagi. Á þessu ári hafa þá komið út tvær efnismiklar skýrslur um þessi mál, báðar að frumkvæði stjórnvalda. Sú fyrri kom fyrir almennings sjónir í maí og eru þar dregnar saman á 2.500 blaðsíðum upplýsingar um brot kirkjunnar á Írlandi allt aftur á fjórða áratug síðustu aldar. Skýrsluna, sem birt var almenningi í gær, fengu stjórnvöld í hendurnar í júlí. Hún er 720 blaðsíður og eru þar skoðuð mál 46 presta sem samtals höfðu fengið á sig 320 kærur. Þessir 46 voru valdir til skoðunar úr hópi 150 presta í umdæmi kirkjunnar í Dublin, sem allir höfðu verið sakaðir um að níðast á drengjum eða stúlkum allt frá árinu 1940. Einungis ellefu prestanna 46 eru nafngreindir, þar sem þeir höfðu fengið dóm fyrir athæfi sitt. Höfundar skýrslunnar sögðust ekki í vafa um að þessir 46 prestar hefðu níðst á mun fleiri börnum en þeim 320 sem kærur höfðu borist vegna. „Einn presturinn viðurkenndi að hafa níðst kynferðislega á meira en hundrað börnum, en annar viðurkenndi að hafa níðst á börnum á hálfs mánaðar fresti allan tímann meðan hann var í embætti, sem var í 25 ár,“ segir í skýrslunni. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Erlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Innlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Misstu aðra herþotu í sjóinn Erlent Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Erlent Fleiri fréttir Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Sjá meira