Lífið

Harry í ástarsorg

Chelsy og Harry eru hætt saman eftir fimm ára samband.
Chelsy og Harry eru hætt saman eftir fimm ára samband.

Á meðan Íslendingar horfðu á eftir Björgvini G. Sigurðssyni úr embætti viðskiptaráðherra þá þurfti Harry Bretaprins að horfast í augu við þá staðreynd að hann væri laus og liðugur. Kærastan hans til fimm ára, Chelsy Davy, sagði honum upp í gegnum síma fyrir nokkrum dögum segir í breska götublaðinu News of the World. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum blaðsins var Chelsy búin að fá nóg af pipar­sveinalíferni prinsins en honum hefur þótt æði gaman að skella sér á pöbbinn með vinum sínum og djamma fram á nótt. Þau ætla þó að vera áfram vinir.

Undanfarnir dagar hafa því reynst Harry erfiðir því hann var áminntur af breska hernum fyrir að kalla félaga sinn „paki" sem er niðrandi heiti yfir innflytjendur í Bretlandi. Og í kjölfarið var það rifjað upp þegar Harry klæddist nasistabúningi á grímuballi fyrir nokkrum árum. Harry mun hafa sagt föður sínum, Karli, frá sambandsslitunum fyrir nokkrum dögum en hann ætti að hafa reynsluna af því að kljást við erfið ástamál. Elísabet drottning mun einnig hafa haft veður af þessari ástarsorg og samkvæmt News of the World er henni illa við óvæntar uppákomur.

Samband Harrys og Chelsy hefur ekki alltaf verið dans á rósum einkum vegna þess að Harry kann því vel að daðra við ókunnugar konur. Þá leika framavonir Chelsy sem lögfræðingur einnig stórt hlutverk en það að vera gift inn í konungsfjölskyldu getur reynst þrándur í götu þeirra sem þrá slíka hluti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.