Vandamál Íslands verður bara leyst á Íslandi 28. maí 2009 15:00 Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra tók til máls í umræðum um aðildarumsókn að Evrópusambandinu á Alþingi fyrir stundu. Hann sagði meðal annars að fyrir sitt leyti teldi hann ólíklegt að Ísland fengi miklar undanþágur eða sérreglur í samningaviðræðum við Evrópusambandið. Það byggði hann á reynslu annarra þjóða og nefndi þar Noreg þar sem ljóst hefði verið að þeir þyrftu undanþágur á sviði sjávarútvegs ef þjóðin ætti að samþykkja niðurstöðuna. „Ég tel meiri líkur á því en minni að samningsniðurstaðan verði ekki aðgengileg fyrir Ísland og þjóðin muni hafna henni. Þar með er málið úr sögunni og kominn botn í það mál og við þurfum þá ekki að hafa það hangandi yfir okkur eins og þetta hefur verið," sagði Steingrímur. Hann sagði að öðru leyti hefðum við um nóg annað að hugsa. „Ég vara við því að þetta mál trufli okkur of mikið og ég ítreka það sem ég hef sagt áður að vandamál Íslands verður bara leyst á Íslandi." Í kjölfar ræðu Steingríms var hann spurður um sína afstöðu gagnvart tillögu ríkisstjórnarinnar og var það Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem spurði fjármálaráðherra. „Það kemur engum við hvernig atkvæði manna falla, frekar en þeir vilja sjálfir ef afstaða þeirra er klár þá gera það það. Stjórnarflokkarnir hafa samþykkt þessa tillögu, ætli það svari ekki spurningunni," sagði Steingrímur. Þorgerður kom strax í kjölfarið og sagði að nú væri Bleik brugðið þegar hæstvirtur fjármálaráðherra hefði ekki skoðun á sinni eigin tillögu. „Ég reyndi hinsvegar að rýna í orð fjármálaráðherra og skyldi orð hans þannig að hann ætli að segja já við tillögunni."
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Innlent Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Innlent Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Innlent Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Fleiri fréttir Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Eldur kom upp í vélarúmi báts Sjá meira