Breskir embættismenn reknir frá Íran 24. júní 2009 04:15 mótmæli Í Íran hefur ekki verið mótmælt síðustu tvo daga en annars staðar í heiminum er áfram mótmælt. Þessi íranski maður mótmælti í Grikklandi í gær. nordicphotos/afp
Tveir breskir embættismenn í Íran voru sendir úr landi í gær. Það var gert í kjölfar ásakana um að bresk stjórnvöld hafi skipt sér með óeðlilegum hætti af kosningunum í Íran hinn 12. júní síðastliðinn. Bresk stjórnvöld svöruðu með því að senda tvo íranska embættismenn frá Bretlandi. Á föstudag gagnrýndi Ali Khamenei Íransleiðtogi Vesturlönd og sagði bresku ríkisstjórnina vera þá verstu. Á mánudag tilkynntu bresk stjórnvöld að þau hefðu kallað fjölskyldur embættismanna í Íran heim til Bretlands í öryggisskyni. Í gær greindi svo íranska utanríkisráðuneytið frá því að tveir breskir embættismenn hefðu verið reknir úr landi fyrir „óhefðbundna hegðun". Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði á blaðamannafundi að Bandaríkin og heimurinn allur væru hneyksluð á framferði íranskra stjórnvalda og fordæmdi „hótanir, barsmíðar og fangelsanir síðustu daga". Hann segir Bandaríkin viðurkenna fullveldi Írans og ekki skipta sér af málefnum landsins. Engin mótmæli fóru fram í Teheran í gær fyrir utan um 100 manna hóp sem mótmælti Vesturlöndum fyrir utan breska sendiráðið, þar sem fánar Bretlands, Bandaríkjanna og Ísraels voru brenndir. Svo virðist sem lögreglu og sérsveitum hafi tekist að brjóta mótmæli vegna forsetakosninganna á bak aftur í bili. Að minnsta kosti sautján hafa látið lífið í mótmælunum og á mánudag birtust myndskeið á netinu af dauða ungrar konu sem hafði orðið fyrir skoti. Konan hét Neda Agha Soltan og hefur orðið nokkurs konar tákngervingur mótmælanna. Bandaríkjaforseti tjáði sig einnig um dauða hennar og sagði myndbandið átakanlegt. Þá sagði hann að þeirra sem berðust fyrir réttlæti yrði alltaf minnst í sögunni. Æðsti klerkurinn Khamenei féllst í gær á að framlengja kvörtunarfrest vegna kosninganna um fimm daga. Íranska klerkastjórnin virðist þó enn vera ákveðin í að hunsa kröfur um að kosið verði á nýjan leik. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Stúlkan sem leitað var að er fundin Innlent Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Innlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Innlent Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Innlent Fleiri fréttir Íhuga að fara inn í Íran til að ná í birgðir landsins af auðguðu úrani Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Sjá meira