Lífið

Hannes Daði á heimsmetið

Hannes Daði er yngsti útvarpsmaður Íslandssögunnar og meira að segja í allri veröldinni.fréttablaðið/gva
Hannes Daði er yngsti útvarpsmaður Íslandssögunnar og meira að segja í allri veröldinni.fréttablaðið/gva

Hannes Daði Haraldsson, nemi í MH, er yngsti útvarpsmaður Íslandssögunnar. Hann var aðeins sex ára þegar hann stjórnaði þættinum Bros í bland á norðlensku útvarpsstöðinni Frostrásinni. Móðir hans Valgerður María Gunnarsdóttir var honum þá til halds og trausts.

Hannes segist einnig bera heimsmeistaratitilinn í faginu. „Við reyndum að hafa samband við heimsmetabókina en það var þvílíkt vesen að það var horfið frá því,“ segir Hannes, sem er stoltur af nafnbótinni. „Það er rosalega gaman að geta hent þessu fram í tíma og ótíma.“

Fréttablaðið greindi nýlega frá því að vinirnir Styrmir Jónasson og Hrólfur Sturla Rúnarsson, sem eru með þátt á Útvarpi Sögu, væru yngstu útvarpsmenn landsins en þeir verða tólf og fjórtán ára á árinu. Vissulega eru þeir yngstu útvarpsmennirnir í dag en þeir komast þó ekki í hálfkvisti við Hannes þegar horft er til sögunnar.

Hann vakti á sínum tíma mikla athygli fyrir útvarpsmennskuna og birtar voru greinar um hann bæði í Séð og Heyrt og Morgunblaðinu. Núna bætist Fréttablaðið hópinn.

Hannes hefur lítið stundað útvarpsmennskuna síðan hann hætti á Frostrásinni en gæti vel hugsað sér að leggja starfið fyrir sig. „Ég hef ekkert farið eftir þetta nema bara í útvarpið hérna í skólanum. En það væri alltaf gaman að komast inn í þetta aftur ef maður gæti það.“

Hugurinn stefnir þó á sagnfræði við Háskóla Íslands eftir að hann útskrifast úr MH. Þar ætti hann að vera á heimavelli þegar kemur að því að rifja upp glæst afrek fortíðarinnar. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.