Grænlenskt þema á fyrstu einkasýningunni í London 16. mars 2009 06:00 Tveir grænlenskir drengir sem María myndaði þegar hún dvaldi þar fyrir nokkru síðan.
Fyrsta einkasýning ljósmyndarans Maríu Kjartansdóttur, Shared Future, stendur yfir í London um þessar mundir. Myndir frá Grænlandi eru áberandi á sýningunni. Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra Íslands í Bretlandi opnaði sýninguna, sem samanstendur af þrjátíu verkum frá Grænlandi, Íslandi og Englandi. Tónlist eftir Birgi Hilmarsson, kærasta Maríu, og hljómsveit hans Blindfold hljómar undir til að gefa myndefninu andlegan undirtón. María segist hafa fengið ótrúlega góð viðbrögð við sýningunni, sem er hluti af East-listahátíðinni í London. „Ég hef verið að taka þátt í mikið af samsýningum áður og maður finnur ekki eins mikið fyrir viðbrögðum fólks þá en hérna fær maður þetta beint í æð,“ segir María, sem er búsett í London. „Það skemmtilega við þetta er að fólk hér á Englandi hefur enga hugmynd um að myndirnar séu frá Grænlandi. Það heldur að þetta sé frá Íslandi og spyr hvort það sé líf á norðurpólnum. Mér finnst stórmerkilegt hvað þeir vita lítið um þessa þjóð,“ segir hún. Ástandið á Grænlandi er mjög slæmt að hennar mati og virðist ekkert fara batnandi. „Ég er búin að fara þrisvar sinnum til Grænlands en ég fer alltaf ein til að tengast fólkinu betur. Ég hef verið þarna alveg nóg til að vita að ég get ekki verið lengi þarna í einu.“ María segir að sýningin fjalli bæði um óttann við dauðann en líka óttann við það að missa allar eigur sínar. „Þegar svona hlutir gerast eins og kreppan er ákveðið tækifæri fyrir fólk að staldra við og hugsa: „Hvernig ætla ég að lifa núna út frá þessum skilyrðum? Hvernig er best að lifa á sem jákvæðastan hátt?“,“ segir hún. Sýningunni lýkur 22. mars og eftir það ætlar María að halda aðra í London með myndum sem hún tók í fjöllum Spánar þar sem hún bjó í helli með hippum og sígaunum. Þar ríkti sá hugsunarháttur að fólk þarf ekki eiga hluti sem það hefur enga sérstaka þörf fyrir, sem María telur að margir gætu lært af á þessum síðustu og verstu tímum. Núna stendur einnig yfir samsýning hennar og Birgis á Ítalíu þar sem blandað er saman landslagsmyndum hennar og tónlistinni hans. Síðar meir vonast María svo til að halda sýningu hér á landi þegar rétta tækifærið gefst. Frekari upplýsingar um ört vaxandi feril hennar má finna á síðunni www.mariak.ifp3.com. freyr@frettabladid.is maría kjartansdóttir Fyrsta einkasýning Maríu stendur yfir í London um þessar mundir. Henni lýkur 22. mars.
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp „Það má herma“ Tíska og hönnun Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira