Mannskepnan og klæðin 3. apríl 2009 04:15 leiklist Hópurinn á sviði í Húmanimal. fréttablaðið/valli
Annað kvöld verður frumsýnd leik- og danssýning í Hafnarfjarðarleikhúsinu sem Álfrún Helga Örnólfsdóttir og Friðrik Friðriksson standa fyrir. Sýninguna kalla þau Húmanimal. Verkefnið hlaut styrk frá leiklistarráði og er nú komið á svið fyrir sameiginlegt átak. Er maðurinn skepna? Í Húmanimal er á ögrandi hátt tekist á við dýrskraftinn innra með manninum og leyndardómar kyneðlisins rannsakaðir. Húmanimal er sýning sem er að springa úr dýrslegum frumkrafti, kynlífi og bælingu. Svo segir í kynningartexta verksins sem gefur aðeins til kynna á hvaða slóðir hópurinn hefur leitað við efnisleit. Ég og vinir mínir kallar hópurinn sig sem stendur að sýningunni. Í honum eru leikarar, dansarar, tónlistarmaður og hönnuður. Í rannsóknum sínum á hvötum mannsins, samböndum og ástinni hafa þau komist að kynlegum niðurstöðum um manndýrið, líkamann og ekki síst föt. Leikendur eru þau Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir, Friðgeir Einarsson, Jörundur Ragnarsson, Margrét Bjarnadóttir og Saga Sigurðardóttir. Tónlist er í höndum Gísla Galdurs Þorgeirssonar en leikmynd og búninga sér Rósa Hrund Kristjánsdóttir um. Umsjón með sviðshreyfingum annast Margrét Bjarnadóttir og Saga Sigurðardóttir, en leikstjórar verkefnisins eru þeir Friðrik Friðriksson og Friðgeir Einarsson. Húmanimal mun deila sviðinu í Hafnarfjarðarleikhúsinu fram eftir vori með Dubbeldusch. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira