Ásta geri grein fyrir alvarlegum ásökunum sínum 23. mars 2009 15:38 Ögmundur Jónasson og Ásta Möller.
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra sagði á Alþingi fyrir stundu að hann færi fram á það að Ásta Möller þingmaður gerði grein fyrir alvarlegum ásökunum sínum gagnvart læknum í landinu. Ögmundur sagðist ætla að ræða ummæli Ástu um MS lyfið Tysabri á fundi heilbrigðisnefndar á miðvikudaginn. Í fréttum Stöðvar 2 á laugardaginn sagðist Ásta hafa heyrt af því að MS sjúklingum væri mismunað á grundvelli menntunar og búsetu við úthlutun á lyfinu Tysabri. Þeir sjúklingar sem notað hafa lyfið hafa náð góðum árangri en fáir fá lyfið þar sem það er dýrt. Ögmundur sagði að þetta væru alvarlegar ásakanir hjá Ástu gagnvart læknum og stjórnendum Landspítalans. Hann sagði að hún þyrfti sem þingmaður að færa rök fyrir þessum alvarlegu ásökunum sínum. Ásta sagði að þessar upplýsingar hefði hún úr samtölum sínum við sjúklinga. Til hennar hefði meðal annars leitað ung kona sem hefði spurt um það atriði er varðar menntun sjúklinga. „Ég sem fulltrúi sjúklinga hlýt að mega varpa fram þeirri spurningu um hvernig þetta er ákveðið." Ögmundur sagði að ef uppi væru efasemdir eða grunsemdir um að læknar og Landsspítalinn væru að mismuna fólki á þessum grundvelli þyrfti að rannsaka það mál. Það væri einnig alvarlegur hlutur að fara með rangt mál og setja fram ásakanir og dylgjur í órannsökuðu máli sem þessu.
Tengdar fréttir Klínísk sjónarmið ráða því hverjir fá Tysabri lyfið Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, segir læknisfræðileg sjónarmið og niðurstöður rannsókna ráða því hvaða sjúklingar fái Tysabri meðferð á spítalnum. Ein aðalástæðan fyrir töf eru dauðsföll eftir gjöf lyfsins erlendis. Lyfið er nýtt og hefur hamlandi áhrif á MS sjúkdóminn. 23. mars 2009 15:00 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Innlent Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Sjá meira
Klínísk sjónarmið ráða því hverjir fá Tysabri lyfið Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, segir læknisfræðileg sjónarmið og niðurstöður rannsókna ráða því hvaða sjúklingar fái Tysabri meðferð á spítalnum. Ein aðalástæðan fyrir töf eru dauðsföll eftir gjöf lyfsins erlendis. Lyfið er nýtt og hefur hamlandi áhrif á MS sjúkdóminn. 23. mars 2009 15:00