Berlusconi nefbrotinn og marinn Óli Tynes skrifar 14. desember 2009 10:17 Berlusconi eftir árásina í gærkvöldi. Mynd/AP
Silvio Berlusconi forsæltisráðherra Ítalíu er nefbrotinn og það brotnuðu úr honum tennur eftir að maður fleygði þungri myndastyttu í andlit hans á pólitískum fundi í Milanó í gærkvöldi. Árásarmaðurinn var handtekinn en hann er ekki talinn ganga heill til skógar. Berlusconi hafði rétt lokið við að flytja þrumandi ræðu og var að heilsa upp á áheyrendur sína þegar hinn fjörutíu og tveggja ára gamli Massimo Tartaglia lét til skarar skríða. Berlusconi var þá í miðjum mannfjöldanum. Tartaglia hélt á styttu af dómkirkjunni í Milanó sem hann fleygði af afli í andlit forsætisráðherrans. Lífverðir hans gripu hann þegar hann féll í götuna. Þeir hífðu hann á fætur aftur og bösluðu honum inn í bíl. Aðrir lífverðir gripu árásarmanninn. Mikið upphlaup varð við þetta. Nokkrir viðstaddra náðu Tartaglia úr höndum lífvarðanna og létu höggin dynja á honum. Lífverðirnir náðu honum þó fljótlega aftur í sínar hendur og leiddu hann á brott. Berlusconi var fluttur á sjúkrahús þar sem gert var að sárum hans. Læknir hans sagði að það tæki hann líklega um tvær vikur að jafna sig á árásinni.
Mest lesið Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Innlent Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Erlent Ísland land númer 197 Innlent Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Erlent Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Erlent Fleiri fréttir Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Misstu allt samband við Internetið Erlendir miðlar fjalla um gjaldþrot Play Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Mafíósar dæmdir til dauða Öruggur um að brátt ríki friður á Gasa Freista þess að koma aðildarumsókn Úkraínu fram hjá Orbán Adams hættir og Cuomo og Mamdani skiptast á skotum Fyrrverandi landgönguliði drap að minnsta kosti fjóra í Michigan Evrópusinnar héldu meirihluta í Moldóvu Orrustuþotur yfir Borgundarhólmi og drónar trufla flug í Noregi Sjá meira