Safna ullarvörum fyrir bresk gamalmenni 14. janúar 2009 09:40 Kolbrún Björnsdóttir og Heimir Karlsson ásamt Gleðigjafanum Gissuri Sigurðssyni.
Í bítinu á Bylgjunni í morgun kom upp sú hugmynd að setja af stað söfnun fyrir bresk gamalmenni. Heimir Karlsson annar stjórnandi þáttarins segir að í Bretlandi sé reiknað með að tólf gamalmenni deyji á hverjum klukkutíma, yfir kaldasta vetrartímann, úr kulda eða sjúkdómum tengdum kulda. Stjórnendur þáttarins ætla því að safna íslenskum lopavörum og senda til gamalmenna í Bretlandi. Heimir ætlar persónulega að fara með eina peysu til Gordons Brown. „Þeir segja að 260.000 gamalmenni hafi látist vegna kulda í Bretlandi síðan 1997. Ég reiknaði það nú út að ef það deyja tólf gamalmenni á hverri klukkustund þá eru þetta sautján þúsund manns á tveimur mánuðum, sem er fáránlegt í vestrænu ríki," segir Heimir. Í kjölfar þessara staðreynda kom upp sú hugmynd að við íslendingar sýndum hjartalag okkar þrátt fyrir meðferðina sem við höfum fengið og færum að safna lopapeysum, húfum, treflum, vettlingum og sokkum og færum með til Bretlands. „Hingað hafa hringt aðilar sem eru tilbúnir til þess að hjálpa okkur að safna þessu saman um allt land. En fólk getur sent þetta eða komið með þetta hingað niður á Bylgju í Skaftahlíðinni. Þetta verða að vera alvöru íslenskar ullarvörur sem er mjög táknrænt," segir Heimir. Og fær Gordon Brown vinur okkar ekki eina peysu? „Ég ætla að fara með eina persónulega til hans, og húfu líka," segir Heimir og hlær. Hann segir að ekki megi gleyma því að kyndingin í Bretlandi sé mjög léleg sem og einangrun á húsum. „Síðan er gamla fólkið hætt að borga af gasinu."
Mest lesið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Tónlist Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni Lífið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Próteinskammtur alltaf með í töskunni Lífið samstarf Fleiri fréttir Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Sjá meira