Mexíkóar stela íslenskri auglýsingu 19. janúar 2009 08:00 Stolin Íslenska bílskúrsbandið gæðir sér á flatbökum eftir velheppnaða æfingu. Mexíkóska útgáfan er nákvæmlega eins nema húsráðandi tekur lagið á kassagítar í lokin. „
Maður hefur séð hugmyndir sem íslenskar auglýsingastofur hafa notað erlendis frá en ég hef ekki séð þetta fara í þessa áttina,“ segir Ársæll Baldursson, framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Ó-ið. Auglýsing sem stofan gerði fyrir Dominos á Íslandi hefur nú verið „endurgerð“ fyrir Dominos í Mexíkó. Reyndar án leyfis. „Við ætlum að grennslast aðeins fyrir um hvaðan þeirra hugmynd er komin. Við gerum ekkert stórmál úr þessu. Þeir hjá Dominos International voru allavega mjög ánægðir með hana og hún var sýnd sem velheppnuð auglýsing á einhverri ráðstefnu hjá þeim,“ útskýrir Ársæll en leikstjóri og handritshöfundur auglýsingarinnar er Þór Ómar Jóhannesson. Auglýsingin sýnir unga og efnilega bílskúrshljómsveit við stífar æfingar, húsráðanda til mikils ama. Hann ákveður að reyna að þagga aðeins niður í rokkinu og rólinu og grípur til þess ráðs að panta pitsu frá Dominos með tilætluðum árangri. Mexíkóska auglýsingin er nánast nákvæmlega eins, nema hvað húsbóndinn tekur lagið í lokin á kassagítar. Ársæll segist vissulega hafa séð auglýsingastofur notfæra sér hugmyndir annarra. Hann hafi hins vegar aldrei áður séð sömu auglýsingu með handriti og öllu. „Okkur finnst náttúrlega íslenska auglýsingin miklu flottari, það er ekki nokkur spurning,“ segir Ársæll. -fgg
Mest lesið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning Fleiri fréttir Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Sjá meira