Fyrrverandi hæstaréttardómarar veita ekki álit á Icesave og stjórnarskrá 11. desember 2009 06:15 Pétur Kr. Hafstein.
Ekki kemur til þess að hæstaréttardómararnir fyrrverandi, Guðrún Erlendsdóttir og Pétur Kr. Hafstein, veiti Alþingi lögfræðiálit um hvort Icesave-frumvarpið standist ákvæði stjórnarskrár. Samkomulag er milli stjórnar og stjórnarandstöðu um tiltekið verklag við meðferð Icesave-málsins. Lögfræðiálitið er hluti af því. Leitað var til Guðrúnar og Péturs þar sem hvorugt hefur látið í ljós skoðun sína á málefninu - öfugt við marga lögspekinga. Bæði hafa hafnað málaleitan þingsins. Pétur staðfesti það í samtali við Fréttablaðið en vildi ekki skýra málið frekar. Guðrún sagði hins vegar að aldrei hefði komið til greina af sinni hálfu að taka verkið að sér. „Ég hafði aldrei heyrt neitt um þetta fyrr en ég heyrði fréttir í útvarpinu og hafði ekki hugsað mér að taka þetta að mér. Þetta er ekki hrist fram úr erminni," sagði Guðrún í samtali við blaðið. Reynt er að fá aðra lögspekinga til verksins. Einnig er reynt að fá bresku lögfræðistofuna Mishcon de Reya til að segja álit sitt á tilteknum lagaatriðum samninganna við Breta og Hollendinga. Beðið er svars um hvort stofan vilji taka það að sér. Samningur þar um er háður tíma og kostnaði. Einnig er til skoðunar að leita sérfræðiálits á efnahagslegum þáttum málsins. Ætlunin er að þrjár fastanefndir þingsins fái afmörkuð úrlausnarefni til meðferðar. Stjórnarandstæðingar vilja að Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir komi fyrir utanríkismálanefnd. Árni Þór Sigurðsson, formaður nefndarinnar, segir óvíst hvort af því verði. Nefndin hafi raunar ekki fengið málið formlega til meðferðar. Fari svo yrði það rætt. „Verði það niðurstaðan að óska eftir að þau komi eða skili einhverju skriflegu þá yrði það væntanlega gert. En í fljótu bragði átta ég mig ekki nákvæmlega á hvað ætlunin er að þau leiði fram." - bþs
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira