Syngur um Bubba Morthens 11. apríl 2009 09:30 Dr. Gunni var að senda frá sér plötuna Dr. Gunni inniheldur. Hann segist varla nenna að spila á tónleikum lengur, betra sé að sitja heima og horfa á sjónvarpið. Fréttablaðið/Vilhelm
Tónlistarmaðurinn Gunnar Hjálmarsson sendi í gær frá sér nýja plötu, Dr. Gunni inniheldur. Platan er seld sem niðurhal á heimasíðu Doktorsins (this.is/drgunni) auk þess sem 300 árituð og tölusett eintök fást í vel völdum plötubúðum. Það heyrir til tíðinda að Dr. Gunni láti til sín taka á tónlistarsviðinu. Hann hefur undanfarið fyrst og fremst látið að sér kveða sem neytendafrömuður. Hann er fyrst spurður hvort allir textarnir séu um kreppu og okur. ¿Það er fullt af kreppu og geðveiki, en líka fjallamennska og já, jafnvel smá okur. Svo er þarna fallegt lag sem heitir Bubbi Morthens. Það er af plötu sem ég gekk einu sinni með í maganum og átti að innihalda eingöngu lög um íslenska poppara. Ég var líka búinn að semja Pétur Kristjánsson og Birgittu Haukdal, en Bubbi Morthens er það fyrsta sem kemur út af þessu stöffi.¿ Hvernig músík er þetta, ertu alveg kominn út í poppið? ¿Þetta er gríðarlega fjölbreytt efni vil ég meina. Allt frá snargeðveiku pönki í kántrí, þaðan í popp, ballöður og iðnaðarrokk. Ég tók eiginlega Hvíta albúm Bítlanna til fyrirmyndar, allt er leyfilegt og skítur gefinn í ¿heildarmynd¿. Eina heildarmyndin er mín fallega söngrödd.¿ Á ekkert að fara að hætta í þessum bransa? Er allt í lagi að vera poppari þegar maður nálgast fimmtugt? ¿Halló, Rolling Stones? Svo er ég bara ekkert að ¿nálgast fimmtugt¿ ¿ bara 43 ára! Þótt það sé alltaf jafn gaman að semja lög og taka þau upp verð ég þó að játa að það verður sífellt erfiðara að nenna að standa í svona aukadrasli eins og að spila á tónleikum. Mig langar yfirleitt miklu frekar til að vera heima að horfa á sjónvarpið en að hanga yfir einhverjum tónleikum. Það verður þó spilað eitthvað á næstunni enda er platan full af hressum lögum sem verður örugglega gaman að spila ¿læf¿.¿ hdm@frettabladid.is
Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara strax og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira