Berlusconi segist bestur Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. september 2009 08:37 Ekki skortir eldmóðinn hjá þeim gamla.
Ítalski forsætisráðherrann Silvio Berlusconi segist kinnroðalaust vera besti þjóðarleiðtogi í sögu Ítalíu. Berlusconi er kominn á áttræðisaldur en lætur þó engan bilbug á sér finna og er reyndar orðinn sá þjóðarleiðtogi Ítalíu sem lengst hefur setið í embætti en hann er nú á sínu þriðja kjörtímabili. Ýmis hneykslismál hafa skreytt feril forsætisráðherrans en hann hefur jafnan látið gagnrýnisraddir sem vind um eyru þjóta og jafnvel svarað fullum hálsi. Það gerði hann til dæmis í viðtali í gær þar sem hann lét spænska blaðið El Pais heyra það. Fullyrti Berlusconi að hann hefði aldrei greitt fyrir kynlíf og að vændiskona sem gerði hljóðupptöku af samskiptum sínum við hann gæti átt von á 18 ára fangelsi verði hún sek fundin. Lögfræðinga Berlusconis hefur ekki skort verkefni undanfarið þar sem þeir hafa verið önnum kafnir við að stefna hinum og þessum fjölmiðlum, innan sem utan Ítalíu, vegna ítrekaðra frétta af forsætisráðherranum og áhuga hans á portkonum. Lífseig saga segir til að mynda að samkvæmi á vegum ráðherrans hafi verið þéttsetið vændiskonum en hann svarar því einu að fjölmiðlar sem standi fyrir slíkum söguburði séu í besta falli ótrúverðugir. Í versta falli eigi þeir hins vegar von á kæru frá Berlusconi.
Mest lesið Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Sjá meira