Framlög til fangelsa og dómstóla aukin 14. desember 2009 04:00 Plássið á Litla-Hrauni og í öðrum fangelsum landsins er löngu uppurið og því verður 107 milljónum varið í að koma upp sextán fangarýmum á gistiheimilinu Bitru.Fréttablaðið / gva
Auka á fjárveitingar til dómstóla og verja yfir 100 milljónum í fjölgun fangarýma á næsta ári. Þetta er meðal þess sem gert er ráð fyrir í breytingartillögum við fjárlagafrumvarp næsta árs, sem ræddar verða á Alþingi í dag. Meðal annars er lagt til að fjárveitingar til héraðsdómstóla hækki tímabundið um 86 milljónir, í samræmi við þær breytingar sem gert er ráð fyrir í nýju frumvarpi um dómstólalög. Þar er kveðið á um að héraðsdómarar landsins skuli vera 43 fram til ársins 2013, í stað 38 eins og nú er, vegna mikillar fjölgunar dómsmála, meðal annars vegna bankahrunsins. Laun þessara fimm dómara til viðbótar nema 53 milljónum á ári, og auk þess er gert ráð fyrir 33 milljónum í laun fimm aðstoðarmanna dómara til viðbótar. Nefndin leggur jafnframt til að fjárveitingar til Hæstaréttar verði hækkaðar um 16 milljónir til að takast á við aukinn málafjölda. Féð á fyrst og fremst að fara í að fjölga aðstoðarmönnum dómara. Þá er lagt til að útgjöld Hæstaréttar lækki um 8 milljónir, enda hefur kjararáð ákveðið að lækka laun hæstaréttardómara um 15 prósent, en í fjárlagafrumvarpinu gleymdist að reikna með því. Á móti þessu á að hækka dómsmálagjöld umfram önnur gjöld. Þá hefur verið ákveðið að leigja gistiheimilið Bitru og koma þar upp sextán fangarýmum. Kostnaðurinn við það er áætlaður 107 milljónir, þar af eru 18 milljónir í húsaleigu. Einnig hefur verið hætt við að skera niður framlög til meðferðargangsins á Litla-Hrauni, og eru 30 milljónir vegna hans lagðar til í breytingartillögunum.stigur@frettabladid.is
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira